Íslenski boltinn

Gary Martin valinn bestur í 1. deild karla - Jón Daði efnilegastur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gary Martin í leik á móti Þrótti.
Gary Martin í leik á móti Þrótti. Mynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson
Skagamaðurinn Gary Martin var í kvöld valinn besti leikmaður 1. deildar karla í fótbolta í sumar en vefsíðan Fótbolti.net fékk þjálfara og fyrirliða deildarinnar til að velja úrvalslið deildarinnar sem og besta leikmanninn, besta þjálfarann og efnilegasta leikmanninum.

Gary Martin fór fyrir Skagaliðinu í sumar sem tryggði sér sæti á ný í úrvalsdeild karla. Martin skoraði 9 mörk í 16 leikjum í deildinni í sumar og átti einnig margar stoðsendingar á félaga sína. Martin kláraði þá ekki tímabilið með ÍA því hann fór á láni til danska félagsins Hjörring á láni um miðjan ágúst.

Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, var valinn besti þjálfarinn og Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson var kosinn efnilegasti leikmaður deildarinnar.

Gary Martin er einn af fimm Skagamönnum í úrvalsliðinu en það má sjá úrvalsliðið hér fyrir neðan. Selfyssingar eiga tvo menn í liðinu en ekkert annað félag á fleiri en einn leikmann í liði ársins.  Það má finna ítarlegri umfjöllun um verðlaun Fótbolti.net með því að smella hér.

Úrvalslið 1. deildar karla 2011:

Markvörður:

Kristján Finnbogason (Grótta)

Varnarmenn:

Illugi Þór Gunnarsson (Fjölnir)

Reynir Leósson (ÍA)

Guðjón Heiðar Sveinsson (ÍA)

Haukur Heiðar Hauksson (KA)

Miðjumenn:

Mark Doninger (ÍA)

Babacarr Sarr (Selfoss)

Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)

Sóknarmenn:

Gary Martin (ÍA)

Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)

Sveinbjörn Jónasson (Þróttur)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×