Formúla 1

Sigur Button dugði ekki gegn Vettel í titilslagnum

Jenson Button og Sebastian Vettel á verðlaunapallinum í Japan í dag.
Jenson Button og Sebastian Vettel á verðlaunapallinum í Japan í dag. AP MYND: GREG BAKER
Jenson Button vann japanska kappaksturinn á Suzuka brautinni í dag. Hann kom fyrstur í endmark á undan Fernando Alonso á Ferrari og Sebastian Vettel á Red Bull. Vettel tryggði sér heimsmeistaratitil ökumanna með árangri sínum í dag.

Vettel var fremstur á ráslínu. Eftir ræsingu sótti Button að Vettel fyrir fyrstu beygju, en Vettel hafði sveigt bíl sínum til hægri og Button þurfti að keyra að hluta til út á grasflöt meðfram brautinni, til að forðast að lenda á Vettel. Lewis Hamilton á McLaren nýtti færið og komst framúr Button.

Button gerði athugasemd við það sem hann taldi vera vísvitandi hindrun hjá Vettel. Dómarar mótsins skoðuðu málið á meðan keppni stóð, en töldu að Vettel hefði ekki brotið af sér og Vettel sagði eftir keppnina íi frétt á autosport.com að það hefði ekki verið ætlun sín að þvinga Button út á grasið.

 

Button náði framúr Hamilton í sjötta hring og eftir að Button tók sitt annað þjónustuhlé kom hann inn á brautina rétt fyrir framan Vettel og var þá í fjórða sæti, en Vettel í því fimmta. Þá höfðu báðir ökumennirnir tekið tvö þjónustuhlé. Þegar ökumenninrnir fyrir framan þá í röðinni höfðu farið í sitt annað þjónustuhlé hver af öðrum var orðinn Button fyrstur á ný, á undan Vettel.

Öryggsibíllinn þurfti að koma út á brautina, eftir lítilsháttar samstuð á milli Felipe Massa á Ferrari og Hamilton, þar sem fjarlæga þurfti hluti sem voru á brautinni eftir skellinn. Button hélt forystunni eftir að keppnin var sett á fulla ferð á ný.

Þegar að ökumennirnir sem höfðu verið í fremstu röð í mótinu höfðu allir tekið þriðja og síðasta þjónustuhléið sitt var Button enn fyrstur, en Alonso hafði náði framúr Vettel. Button lét engan bilbug á sér finna á lokasprettinum og kom fyrstur í endamark og Alonso og Vettel komu á eftir honum.

Vettel þurfti aðeins eitt stig fyrir mótið í Japan til að tryggja sér meistaratitilinn, en fékk 15 stig fyrir þriðja sætið. Hann innsiglaði þannig annan meistaratitilinn í röð og er yngsti ökumaðurinn sögunnar til að verða meistari í tvígang, eftir að hafa verið sá yngsti til að vinna meistaratitil í fyrra.

Red Bull tókst ekki að ekki að tryggja sér meistaratitil bílsmiða í dag, eins og möguleiki var á ef úrslitin hefðu verið liðinu hagstæð í dag. Red Bull er með 130 stiga forskot á McLaren í stigamóti bílasmiða þegar fjórum mótum er ólokið. Næsta mót er Í Suður Kóreu um næstu helgi.

Tímarnir og stigin af autosport.com.

Lokastaðan í Japan

1. Button McLaren-Mercedes 1:30:53.427

2. Alonso Ferrari + 1.160

3. Vettel Red Bull-Renault + 2.006

4. Webber Red Bull-Renault + 8.071

5. Hamilton McLaren-Mercedes + 24.268

6. Schumacher Mercedes + 27.120

7. Massa Ferrari + 28.240

8. Perez Sauber-Ferrari + 39.377

9. Petrov Renault + 42.607

10. Rosberg Mercedes + 44.322

Stigastaðan

Ökumenn Bílasmiðir

1. Vettel 324 1. Red Bull-Renault 518

2. Button 210 2. McLaren-Mercedes 388

3. Alonso 202 3. Ferrari 292

4. Webber 194 4. Mercedes 123

5. Hamilton 178 5. Renault 72

6. Massa 90 6. Force India-Mercedes 48

7. Rosberg 63 7. Sauber-Ferrari 40

8. Schumacher 60 8. Toro Rosso-Ferrari 29

9. Petrov 36 9. Williams-Cosworth 5




Fleiri fréttir

Sjá meira


×