Íslenski boltinn

KSÍ aðeins í viðræðum við Lagerbäck

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lars Lagerbäck.
Lars Lagerbäck.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir að viðræður við Lars Lagerbäck gangi vel og að hann sé vongóður um að hægt verði að ganga frá samningum á næstu dögum.

Geir sagði í viðtali við Guðmundur Benediktsson íþróttafréttamann í Portúgal að KSÍ ætti aðeins í viðræðum við Lagerbäck þessa dagana um að stýra landsliðinu í undankeppni HM 2014.

Hávær krafa hefur verið um ráðningu erlends þjálfara fyrir íslenska landsliðið í knattspyrnu en það hefur þó verið gagnrýnt hversu dýr sú ráðning kunni að vera.

Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×