Íslenski boltinn

Pearce: Norðmenn sigurstranglegastir eins og er

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stuart Pearce, þjálfari U-21 liðs Englands.
Stuart Pearce, þjálfari U-21 liðs Englands. Nordic Photos / Getty Images
Stuart Pearce, þjálfari enska U-21 landsliðsins, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í Laugardalnum í dag en U-21 lið Íslands mætir á morgum jafnöldrum sínum frá Englandi í undankeppni EM 2013.

Ísland er einnig í riðli með Noregi, Belgíu og Aserbaídsjan og byrjaði á því að vinna Belga í síðasta mánuði en tapa svo fyrir Noregi. Ísland er því með þrjú stig, rétt eins og England sem vann Asera á heimavelli í byrjun september.

„Ég held að þetta sé riðill þar sem liðin geta öll reitt stig hver af öðru,“ sagði Pearce á blaðmannafundi í Laugardalnum í gær. „Það er líka tilfinningin sem ég hef eftir að hafa séð fyrstu leikina.“

„Íslendingar hafa staðið sig mjög vel og þá sérstaklega í þessum aldursflokki. Það var frábært hjá þeim að komast í úrslitakeppnina í Danmörku í sumar og þeir náðu að vinna okkur á okkar heimavelli í mars síðastliðnum.“

„Ég á því von að þetta verði mjög erfiður leikur fyrir bæði lið.“

Hann hefur skoðað íslenska liðið og segir að það sé einkar vel skipulagt og með marga hæfileikaríka leikmenn. „Íslenskir leikmenn eru af náttúrunnar hendi afar vinnusemir og skipa góða liðsheild. Þetta hef ég séð ítrekað aftur og aftur með þeim leikjum sem ég hef skoðað með liðinu.“

Pearce telur að sautján stig muni duga til að komast áfram úr riðlinum og í umspilið um laust sæti í úrslitakeppninni í Ísrael sumarið 2013. „Liðin hafa því ekki mikið svigrúm til að misstíga sig. Þetta er því mikilvægur fyrir bæði lið.“

Honum finnst mikið til norska liðsins koma og segir það líklegast til afreka í riðlinum. „Norðmenn voru mjög öflugir gegn Íslandi og ég á von á því að þeir verði sterkir, sérstaklega á heimavelli. Þetta er því afar athyglisverður riðill.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×