Íslenski boltinn

Eiður Smári úr leik - þrír nýir kallaðir í landsliðshópinn

Enn kvarnast úr íslenska landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Portúgal á föstudag. Eiður Smári Guðjohnsen hefur nú þurft að draga sig úr hópnum vegna meiðsla rétt eins og Kolbeinn Sigþórsson.

Svo er spurning hvort Helgi Valur Daníelsson taki þátt í verkefninu en kona hans á von á barni á næstu dögum.

Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur kallað á þrjá nýjan leikmenn en þeir eru Baldur Sigurðsson, Arnór Smárason og Guðmundur Kristjánsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×