Íslenski boltinn

Andri tekur við ÍR - Árni Freyr á leið til Fylkis eða ÍBV

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Andri Marteinsson verður þjálfari ÍR.
Andri Marteinsson verður þjálfari ÍR. Mynd/Stefán
Andri Marteinsson var í dag ráðinn þjálfari ÍR en félagið hefur þar að auki samþykkt tilboð Fylkis og ÍBV í miðjumanninn Árna Frey Guðnason.

Þetta kemur fram á Fótbolta.net. Andri var síðast þjálfari Víkings í Pepsi-deildinni en þar áður þjálfaði hann Hauka í fjögur ár og kom liðinu upp um tvær deildir. Hann var hins vegar látinn fara hjá Víkingi um mitt tímabil en félagið féll engu að síður í 1. deildina í haust.

Árni Freyr er uppalinn FH-ingur og er samningsbundinn ÍR í eitt ár til viðbótar. Hann stefnir á að leika í Pepsi-deildinni á næstu leiktíð og mun nú ræða við Fylki og ÍBV um kaup og kjör.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×