Viðskipti erlent

Bernanke: Ég skil mótmælin vel

Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna.
Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna.
Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagðist í dag um margt skilja vel þá reiði og gremju sem endurspeglaðist ekki síst í Wall Street-mótmælunum (Occupy Wall Street). Þau hafa haft víðtæk áhrif um allan heim, en þó hvergi eins mikil og í Bandaríkjunum. Stuðningur við þau mælist mikill í könnunum þar í landi, þvert á pólitískar línur.

„Ég næ þessu og er sammála því að það er óviðunandi hvernig staða efnahagsmála er,“ sagði Bernanke þegar blaðamaður LA Times spurði hann út í fyrrnefnd mótmæli á blaðamannafundi í dag, og þá ekki síst það að mótmælin beindust meðal annars að seðlabankanum.

Bernanke sagði atvinnuleysi vera alltof mikið í Bandaríkjunum og að staðan væri almennt óviðunandi. Hann sagði þó að það væri hans mat að gagnrýnin á seðlabankann væri ekki að öllu leyti sanngjörn. Einkum þegar kæmi að aðgerðum sem bankinn greip til haustið 2008 og á árinu 2009. „Við gripum til aðgerða sem algjörlega nauðsynlegt var að grípa til,“ sagði Bernanke. Hann sagði að afleiðingarnar af því ef seðlabankinn hefði ekki dælt fé inn á markaði og gripið til annarra margvíslegra aðgerða, hefðu getað orðið skelfilegar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×