Viðskipti erlent

Hætta á að olíuverðið fari í 150 dollara á tunnuna

Alþjóða orkumálastofnunin gerir ráð fyrir stighækkandi olíuverði í heiminum fram til ársins 2035. Hætta er á að olíuverðið í 150 dollara á tunnuna í náinni framtíð.

Þetta kemur fram í árlegri skýrslu stofnunarinnar um útlitið í orkumálum heimsins. Þar segir að til skamms tíma hafi létt á þrýstingnum á verðhækkanir á olíu sökum efnahagserfiðleikanna sem hrjá Vesturlöndin og því að olíuframleiðsla Líbíu er að braggast að nýju eftir uppreisnina þar.

Hinsvegar muni eftirspurn eftir olíu halda áfram að vaxa töluvert einkum í nýmarkaðslöndum þar sem bílafloti íbúa þeirra verður stöðugt stærri. Áætlað er að eftirspurn eftir olíu muni aukast úr 87 milljónum tunna á dag í ár og upp í 99 milljónir tunna árið 2035.

Alþjóða orkumálastofnunin reiknar með að olíuverð hækki áfram og verði um 120 dollarar á tunnuna árið 2035. Þetta er þó háð því að fyrirhugaðar og áætlaðar fjárfestingar í nýjum olíusvæðum í Miðausturlöndum og Norður Afríku standist. Ef þær minnka um þriðjung má búast við að olíuverðið fari í 150 dollara á tunnuna fyrir árið 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×