Viðskipti erlent

Obama krefst aðgerða hjá ESB gegn skuldakreppunni

Leiðtogar Evrópusambandsins verða að grípa til raunhæfra aðgerða strax áður en skuldakreppan í Evrópu fer algerlega úr böndunum og skaðar efnahag Bandaríkjanna.

Þetta voru skilaboðin frá Barack Obama Bandaríkjaforseta þegar hann hitti nokkra leiðtoga Evrópusambandsins á fundi í Hvíta húsinu í Washington í gærkvöldi. Meðal þeirra sem sátu fundinn af hálfu Evrópusambandsins voru Herman Van Rompuy forseti sambandsins og José Manuel Barroso formaður framkvæmdanefndar þess. Auk Obama voru Hillary Clinton utanríkisráðherra og Timothy Geithner fjármálaráðherra Bandaríkjanna á fundinum.

Obama segir að Bandaríkin muni leggja sitt af mörkum til að leysa skuldakreppuna en hann gat ekki um neinar ákveðnar aðgerðir í því sambandi. Hann segir hinsvegar að lausn á kreppunni sé ákafleg mikilvæg fyrir Bandaríkin.

Í fjölmiðlum vestan hafs er haft eftir sendiherra Evrópusambandsins í Bandaríkjunum að þegar sé farið að ræða í einkaviðtölum um til hvaða aðgerða Bandaríkin muni grípa gegn skuldakreppunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×