Tónlist

Frumsýna glænýtt myndband við lagið Ást og áfengi

Hljómsveitin Klaufar frumsýnir hér nýtt glænýtt myndband við smellinn Ást og áfengi. Það fer ekki milli mála að hér er alvöru kántrísveit á ferðinni en meðlimir hennar segja hana hina einu sinnar tegundar á landinu.

Klaufarnir hafa starfað í fimm ár og leikið kántrí vítt og breytt um landið fyrir landann.

Sveitin samanstendur af þeim Guðmundi Annas Árnasyni söngvara, Sigurgeir Sigmundssyni fetilgítarleikara, Birgi Nielsen trommara, Friðriki Sturlusyni bassaleikara og Kristjáni Grétarssyni gítarleikara.

Klaufarnir hafa gefið út tvær plötur sem báðar voru teknar upp í Nashville. Í sumar urðu mannabreytingar á sveitinni og kom hún fram í fyrsta sinn í núverandi mynd á Kántríhátið í Skagaströnd í ágúst. Þar frumfluttu þeir félagar Ást og áfengi.

Lagið sömdu þeir í samvinnu við lagahöfunda í Nashville en hinn þrælskemmtilegi, ekta kántrítexti er eftir Jónas Friðrik. Lagið leggst þrusuvel í aðdáendur sveitarinnar til sjávar og sveita og er meðal annars komið í spilun hjá sjálfri Kántrístöðinni á Skagaströnd.

Einnig er hægt að sjá myndbandið á sjónvarpsvef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×