Viðskipti erlent

Hafa áhyggjur af ungverska seðlabankanum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ungverski seðlabankastjórinn Andras Simor. Óttast er að sjálfstæði seðlabankans hafi verið stefnt í voða.
Ungverski seðlabankastjórinn Andras Simor. Óttast er að sjálfstæði seðlabankans hafi verið stefnt í voða. mynd/ afp.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn eru hætt óformlegum viðræðum um björgunarpakka fyrir Ungverjaland sem voru farnar af stað. Ungverjaland hefur óskað eftir 15-20 milljarða evra lánalínum ef landið lenti í greiðsluerfiðleikum. Framkvæmdastjórar Evrópusambandsins segja hins vegar að ný lög sem voru samþykkt um Seðlabankann í Ungverjalandi takmarki mjög sjálfstæði hans og við það verði ekki unað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×