Viðskipti erlent

Segir Breta eiga að lækka á undan Frakklandi

Christian Noyer.
Christian Noyer.
Það ætti að lækka lánshæfi Bretlands á undan Frakklandi, segir Christian Noyer, bankastjóri seðlabankans í Frakklandi.  Hann segir að ákvörðun Davids Camerons, forsætisráðherra Bretlands, um að standa fyrir utan samkomulag Evrópusambandsþjóða um aðgerðir til þess að tryggja efnahagslegan stöðugleika á Evrópusambandssvæðinu, þýða að lánshæfi Bretlands ætti að lækka á undan Frakklandi.

Þetta kemur fram á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's hefur þegar varað við því að lánshæfi nokkurra evrópskra þjóða, þar á meðal Frakklands, kunni að lækka á næstunni vegna skuldavanda þjóðríkja og banka.

"Ég get ekki séð að þetta sé réttlætanlegt, þ.e. að lækka Frakkland," segir Noyer við BBC. Hann segist telja franskan efnahag vera traustan þó blikur séu á lofti. Talsmaður breska forsætisráðuneytisins segir að ákvarðanir lánshæfismatsfyrirtækja vera alfarið þeirra og ekkert við þeim að segja. Hins vegar sé þegar komin til framkvæmda áætlun um að gera ríkisfjármálin í Bretlandi sjálfbær til framtíðar og það sé það sem skipti máli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×