Viðskipti innlent

Fyrirtæki Framtakssjóðs á markað strax næsta haust

Hafsteinn Hauksson skrifar
„Það er engin spurning," segir Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Verslunarmanna, um hvort fyrirtæki í eigu Framtakssjóðs verði sett á markað á næstunni.

„Framtakssjóðurinn vill fara með þau fyrirtæki á markað sem hann hefur komið að," bætir Helgi við.

Hann telur að Skýrr verði skráð strax næsta haust, en vonir standa til að N1 og Vodafone fari sömu leið.

„Eitt af verkefnum Framtakssjóðsins er að efla Kauphöllina. Hann er að vinna að því og það mun gerast. Síðan eru bankarnir með fyrirtæki sem þeir vilja koma á markað, til dæmis Tryggingamiðstöðina, Horn og ýmis fasteignafélög. Þetta fer allt á markað, en okkur finnst þetta ganga hægt og taka langan tíma."

Í nýjasta þætti Klinksins segir Helgi jafnframt að lífeyrissjóðirnir þurfi að koma að orkugeiranum í vaxandi mæli. Þeir hafi meðal annars skoðað möguleika á samstarfi við OR um Hverahlíðavirkjun, en hugmyndin um sölu Landsvirkjun sé þó sú stærsta sem komið hafi til umræðu.

Hægt er að horfa á Klinkið í heild sinni hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×