Nonni Mæju: Mikið sjálfstraust í liðinu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 10. febrúar 2011 23:21 Jón Ólafur Jónsson. Mynd/Vilhelm
Jón Ólafur Jónsson, betur þekktur sem Nonni Mæju, brosti í gegnum þykkt skeggið eftir frækinn sigur Snæfells á Grindavík í kvöld. "Við komum svakalega flott til baka eftir leikinn. Pálmi var svona eins og góður framherji í fótbolta sem stígur upp undir lokin og klárar leiki," sagði Nonni en hann átti sjálfur magnaðan leik, skoraði 26 stig og setti þristinn sem kom Snæfelli yfir í lokaleikhlutanum. "Ég skil ekki hvað gerðist hjá okkur í upphafi seinni hálfleiks því við töluðum um það í klefanum að mæta tilbúnir í seinni hálfleik. Það gekk ekki alveg eftir og þetta var óskiljanlegt hjá okkur því við vissum að þeir kæmu brjálaðir til seinni hálfleiks. Við vorum aftur á móti steinsofandi. "Eftir það var mjög ljúft að landa þessum sigri. Það eru tveir sterkir leikmenn hjá okkur meiddir en við náum að kreista út sigurinn. Það er flott. Það er komið mikið sjálfstraust í liðið eftir síðasta tímabil og það er enn að skila sér." Jón stóð oft vaktina í vörninni gegn Ryan Pettinella en sá var illviðráðanlegur með 35 stig og 20 fráköst. "Hann gjörsamlega drap mig undir körfunni. Svo var alveg sama hverju hann henti upp, það fór allt ofan í. Hann er nautsterkur og ég var orðinn mjög þreyttur að hanga ofan í honum. Sem betur fer hafðist þetta þó svo hann hefði verið góður," sagði Jón og brosti breitt.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Fótbolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira