Snæfell vann dramatískan sigur í toppslagnum í Grindavík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. febrúar 2011 20:58 Jón Ólafur Jónsson var góður í Grindavík í kvöld. Mynd/Stefán
Snæfell náði fjögurra stiga forskoti á toppi Iceland Express deildar karla í körfubolta eftir fjögurra stiga sigur í Grindavík, 90-86, í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar í Röstinni í kvöld. Leikurinn var frábær skemmtun og afar sveiflukenndur þar sem liðin skiptust á að ná frábærum sprettum en Snæfell vann síðustu tvær mínúturnar 13-2 og tryggði sér dramatískan sigur. Snæfellsliðið lék án miðherja síns Ryan Amaroso (meiddur) og réð lítið við Ryan Pettinella sem var með 35 stig og 20 fráköst fyrir Grindavík í kvöld. Jón Ólafur Jónsson átti mjög góðan leik fyrir Snæfellsliðið og skoraði 26 stig en Zeljko Bojovic var með 22 stig og 10 fráköst í fyrsta leiknum í Snæfellsbúningnum. Eftir jafnan fyrsta leikhluta skoraði Snæfell síðustu körfuna í leikhlutanum og var 28-25 yfir við lok hans. Nýi maðurinn Zeljko Bojovic skoraði 13 stig í fyrsta leikhlutanum. Snæfell skoraði síðan sex fyrstu stig annars leikhlutans og var að lokum með fimmtán stiga froskot í hálfleik, 53-38, eftir að hafa unnið annan leikhlutann 25-13. Helgi Jónas Guðfinnsson hélt greinilega alvöru ræðu í hálfleik því Grindavíkurliðið skoraði sextán fyrstu stig seinni hálfeiks og komst yfir í 54-53 þegar 4 mínútur og 36 sekúndur voru liðnar af hálfleiknum. Snæfell skoraði loksins eftir 4 mínutur og 49 sekúndur og við tók æsispennandi kafli þar sem liðin skiptust á að hafa naumt forskot. Snæfell var síðan með eins stigs forskot, 68-67, fyrir lokaleikhlutann. Það voru síðan miklar sveiflur á lokasprettinum. Grindvíkingar skoruðu átta stig í röð og breyttu stöðunni úr 74-74 í 82-74 en í stöðunni 84-77 svaraði Snæfell með ellefu stigum í röð, komst í 88-84 og lagði grunninn að sigrinum.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Fótbolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira