Fótbolti

Juventus hafði betur gegn Inter Milan

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Markaskorarinn Alessandro Matri í leiknum í kvöld.
Markaskorarinn Alessandro Matri í leiknum í kvöld. Getty Images
Átta leikir fóru fram í ítölsku knattspyrnunni í dag. Stærsti leikur dagsins var án efa leikur Juventus og Inter Milan sem fram fór í Torino. Juventus vann góðan sigur á ítölsku meisturunum, 1-0, og var það Alessandro Matri sem skoraði sigurmarkið á 30. mínútu.

Af öðrum úrslitum í dag má nefna að Lazio vann góðan útisigur á Brecia, 0-2, og fer um leið upp í þriðja sæti deildarinnar með 45 stig. Juventus er með sigri kvöldsins 41 stig og fer upp í 6. sæti deildarinnar.

Úrslit dagsins í ítalska boltanum:

Palermo 2-4 Fiorentina

Bari 0-0 Genoa

Brescia 0-2 Lazio

Cagliari 4-1 Chievo

Catania 3-2 Lecce

Cesena 0-3 Udinese

Sampdoria 3-1 Bologna

Juventus 1-0 Inter Milan






Fleiri fréttir

Sjá meira


×