Tóta er hárgreiðslukona að mennt og rak áður hárgreiðslustofuna 101 Hárhönnun sem er staðsett við Skólavörðustíg. Hún hefur þó lengi haft áhuga á hönnun og flutti til Svíþjóðar til þess að reyna fyrir sér í þeim bransa.
„Ég var ekki með neitt plan þegar ég flutti út, mig langaði bara að breyta til og þreifa fyrir mér í fatahönnuninni," útskýrir Tóta. Hún hefur þegar verið fengin til að hanna eina fatalínu fyrir vefverslunina Nelly.com og er hún væntanleg í sölu nú í apríl.
Aðspurð segist Tóta ekki vita mikið um hönnunarsamkeppni Sister annað en að þetta sé í fyrsta sinn sem hún er haldin og að verðlaunaflíkin verði sett í framleiðslu og seld í verslunum Sisters.

Tóta segist kunna vel við sig í Svíþjóð og sér ekki eftir því að hafa flutt út. „Ég er ekkert að sigra heiminn en mér finnst voðalega gaman að gera það sem ég er að gera og er mjög ánægð með líf mitt hérna í Stokkhólmi, borgin er mjög falleg og veitir manni innblástur á hverjum degi," segir hún að lokum glaðlega.-sm
Hér er hægt að gefa kjól Tótu atkvæði.