Gunnar Rúnar með tvískiptan persónuleika - afar umdeild röskun Valur Grettisson skrifar 7. febrúar 2011 15:39 Gunnar Rúnar Sigurþórsson er með afar umdeildan geðsjúkdóm.
Samkvæmt niðurstöðum Helga Garðars Garðarssonar geðlæknis þá er Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem banaði Hannesi Þór Helgasyni, með tvískiptan persónuleika. Vísir ræddi við Halldóru Ólafsdóttur, yfirlækni göngudeildar og bráðamóttöku geðdeildar Landspítalans, en hún segist hafa séð örfá tilvik á sínum 25 ára ferli. Tvískiptur persónuleiki flokkast undir persónuleikaröskun og brýst fram í öðrum persónuleikum eða alter egóum. Greiningin er gríðarlega umdeild að sögn Halldóru, meðal annars eru breskir geðlæknar afar andsnúnir greiningunni, sem hefur oft verið notuð í skáldskap. Til að mynda er skáldsagan Dr. Jekyll og Mr. Hyde ein sýn bókmenntanna á röskuninni. Þá varð röskunin heimsþekkt eftir að aðalsögupersóna kvikmyndarinnar Fight Club reyndist vera tveir persónuleikar. Halldóra segir lýsingar skemmtanaiðnaðarins þó tóma tjöru og ekkert í líkingu við veruleikann. Gunnar Rúnar hefur játað að hafa myrt Hannes Þór á heimili hans í Hafnarfirði síðasta sumar. Í mati geðlæknanna kemur fram að Gunnar hafi orðið fyrir miklu áfalli þegar faðir hans svipti sig lífi, þá var Gunnar aðeins níu ára gamall. Svo virðist sem Gunnar hafi átt gríðarlega erfitt með að sætta sig við föðurmissinn. Þannig taldi hann sér trú um að faðir hans væri enn á lífi. Það samræmist hugsanlega einu einkenni röskunarinnar, sem er að viðkomandi verði fyrir áfalli í bernsku sem hann neitar að horfast í augu við og grefur í undirmeðvitund sína. Svo brýst tilfinningin að lokum fram sem annar persónuleiki. Einkenni persónuleikaröskunnar eru oft minnisleysi, óútskýrður höfuðverkur og skyndileg ofsareiði sem er ekki í samræmi við aðstæður. Aðalsögupersóna Fight Club var líka með tvískiptan persónuleika. En lýsingarnar eru þó tóm tjara að mati sérfræðinga. Að sögn Halldóru eru til dæmi um að fólk hafi verið greint með tvískiptan persónuleika löngu eftir að röskunin fór að gera vart við sig. Þannig getur viðkomandi gengið með einkennin í talsverðan tíma og leynt þeim. En það er hart deilt um greininguna í fræðisamfélaginu. Sumir geðlæknar halda því fram að röskunin sé í raun ekki til. Þess má geta að hlutfallslega fleiri greiningar á þessum sérkennilega geðsjúkdómi eiga sér stað í Bandaríkjunum. Þá er Helgi Garðar eini geðlæknirinn af þremur sem greinir Gunnar Rúnar með þessa röskun. Hinir tveir fjalla ekki um það. Þá er athyglisvert að tvískiptur persónuleiki er elsti skráði geðsjúkdómurinn í sögubókum. Þannig er greint frá því að rómverski guðinn Janus hafi verið með tvö andlit. Þá var fólk með þessa röskun oft talið andsetið fyrr á öldum. Árið 1974 kom bókin Sybil út og naut hún gríðarlegra vinsælda. Hún fjallaði um konu sem hafði 16 persónuleika. Í kjölfarið var gerð sjónvarpsmynd sem naut einnig mikilla vindælda. Þangað til þá höfðu 200 manns verið greindir með röskunina, en frá árunum 1980 til 1990 voru 20 þúsund einstaklingar greindir með röskunina. Þá voru 40 þúsund tilfelli greind í heiminum frá 1985 til 1995. Flestir í Bandaríkjunum og öðrum enskumælandi löndum. Þrátt fyrir þetta þá er greiningin engu að síður meðal staðlaðra greininga bæði í Bandríkjunum og Evrópu og því viðurkennd greining í geðlæknafræðum. Verjandi Gunnar Rúnars segir hann ósakhæfan. Ríkissaksóknari er hinsvegar ósammála og heldur því fram að skipulag morðsins hafi verið slíkt að hann hafi verið fullkomlega meðvitaður um gjörðir sínar. Geðlæknarnir þrír eru þó ósammála ríkissaksóknara samkvæmt vitnisburði þeirra, en afar sjaldgæft er að dómari dæmi gegn slíkum álitum. Málið hefur verið lagt í dóm og má vænta dóms innan fjögurra vikna.
Morðið á Hannesi Þór Helgasyni Tengdar fréttir Fór að huga að morði eftir gerð YouTube myndbandsins Hugmynd Gunnars Rúnars Sigurþóssonar um að losna við Hannes Þór Helgason virðist hafa sprottið upp eftir að hann setti myndband á YouTube með ástarjátningu til hennar til unnustu Hannesar. Þetta kom fram í máli Tómasar Zoega geðlæknis sem gerði yfirmat á Gunnari Rúnari Sigurþórssyni ásamt Kristni Tómassyni geðlækni. 7. febrúar 2011 10:44 Deilt um sakhæfi Gunnars Rúnars Í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni er aðallega deilt um sakhæfi Gunnars, sagði Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari í málflutningi sínum fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Vitnaleiðslur báru þessa klárlega merki í dag, enda voru fjögur vitni og þar af þrír geðlæknar. Gunnar Rúnar hefur játað morðið á sig á fyrri stigum þess og vildi ekki bæta neitt við þann framburð í dag. 7. febrúar 2011 12:23 Aðkoman á morðstað föst í huga Hildar „Mér líður ógeðslega illa - persónan sem ég var er bara horfin," sagði Guðlaug Matthildur Rögnvaldsdóttir, unnusta Hannesar Þórs Helgasonar, við vitnaleiðslur í héraðsdómi í morgun. Guðlaug Matthildur, sem kölluð er Hildur, var niðurlút þegar hún gekk inn í dómssalinn. 7. febrúar 2011 11:21 Morðmálið lagt í dóm Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni lauk eftir klukkan eitt í dag og málið var þá lagt í dóm. Ákæruvaldið krefst ítrustu refsingar yfir Gunnari Rúnari sem er sextán ára fangelsi. Verjandi hans krefst hins vegar sýknu á grundvelli 15. greinar almennra hegningalaga, þ.e. á þeirri forsendu að hann hafi verið ófær um að stjórna gerðum sínum sökum geðveiki þegar morðið var framið. 7. febrúar 2011 14:33 Gunnar Rúnar svarar engu - víkur úr dómsal Gunnar Rúnar Sigurþórsson svarar engum spurningum við aðalmeðferð sem nú stendur yfir þar sem hann er ákærður fyrir að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana. Lögmaður Gunnars, Guðrún Sesselja Arnardóttir, tilkynnti við upphaf aðalmeðferðarinnar í morgun að hann myndi nýta sér rétt sinn til að svara engum spurningum heldur aðeins staðfesta lögregluskýrslur. Gunnar Rúnar óskaði eftir að víkja úr dómsal á meðan aðalmeðferðin stendur yfir, utan þess þegar hann staðfestir lögregluskýrslur, og var orðið við þeirri beiðni. Að þessu loknu var gert stutt hlé á þinghaldi en næst á dagskrá er skýrslutaka af geðlæknum. 7. febrúar 2011 09:46 Djúpstæð sektarkennd vegna morðsins Gunnar Rúnar Sigurþórsson þroskaðist eðlilega sem ungt barn en varð fyrir hörmulegu áfalli þegar faðir hans svipti sig lífi. Þetta sagði Helgi Garðar Garðarsson geðlæknir sem gerði geðrannsókn á Gunnari Rúnari eftir að hann var handtekinn vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni í ágúst. Helgi Garðar bar vitni í dómnum í morgun. Helgi Garðar telur Gunnar Rúnar vera ósakhæfan og vill að hann sæti öryggisgæslu. 7. febrúar 2011 10:06 Svæsið geðrof gerði Gunnar Rúnar ófæran um að stjórna gerðum sínum Svæsið geðrof varð til þess að Gunnar Rúnar Sigurþórsson varð ófær um að stjórna gerðum sínum, sagði Guðrún Sesselja Arnardóttir, verjandi Gunnars Rúnars, í málflutningi fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Máli sínu til stuðnings benti hún á vitnisburð þriggja geðlækna sem hafa borið vitni fyrir dómi. Hún fer frammá sýknu í málinu. 7. febrúar 2011 13:32 Erfiður morgunn fyrir fjölskyldu Hannesar „Það hefur verið erfitt fyrir þá sem sitja í dómsalnum að hlusta á óhugnanlegar lýsingarnar á morðinu. Ekki síst fyrir fjölskyldu, vini og aðstandendur Hannesar. Þetta hefur verið erfiður morgunn,“ sagði fréttamaðurinn Andri Ólafsson, í viðtali við Bylguna í hádeginu, þar sem hann lýsti andrúmsloftinu í réttarhöldunum yfir Gunnar Rúnari Sigurþórssyni. 7. febrúar 2011 12:16 Réttað yfir Gunnari Rúnari: Fullt út úr dyrum í héraðsdómi Aðalmeðferð fer nú fram í máli saksóknara gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni sem játað hefur að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana í Hafnarfirði í ágúst í fyrra. 7. febrúar 2011 09:18 Mest lesið Konan sem ekið var á er látin Innlent Sæðisgjafamálið: „Við fjölskyldan vöknuðum upp við vondan draum“ Innlent Skora á Rúv að endurskoða þessa „misráðnu ákvörðun“ Innlent Leigubílstjóri og vinur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Innlent Gerðu engin mistök með nafngreiningu vændiskaupanda Innlent Trampólín á flugi og vagn á hliðinni Innlent Fallhlífin flæktist í stélið Erlent Styrkirnir ekki auglýstir: Segir Miðflokkinn haldinn hysteríu og ótta við þjóðina Innlent Gagnrýnir að auglýsingaskilti sé sett framar umferðaröryggi barna í forgangsröðinni Innlent Fleiri fréttir Hvetja til bólusetningar vegna inflúensufaraldurs Slapp ekki með typpamynd til þrettán ára Halda starfsleyfinu þrátt fyrir kröfur íbúa Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Vill skoða úrsögn úr EES Leigubílstjóri og vinur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Skaftárhlaup enn yfirstandandi Helgi Valberg tekur við ritarastöðunni Stór áfangi Borgarlínu afgreiddur í skipulagsráði og á leið í kynningu Rannsókn lokið þrjátíu árum eftir snjóflóðið Kópavogur svarar: Ljósmagnið á skiltinu minnkað og þverun væntanleg Lífsýni úr öðrum manni nýju sönnunargögnin Ljóst að einhverjir dragi lög sín til baka Konan sem ekið var á er látin Styrkirnir ekki auglýstir: Segir Miðflokkinn haldinn hysteríu og ótta við þjóðina Skora á Rúv að endurskoða þessa „misráðnu ákvörðun“ Trampólín á flugi og vagn á hliðinni Tekist á um fangelsismálin og Útvarpsstjóri ræðir framtíð Söngvakeppninnar Mál Brákarborgar hefur kostað borgina yfir þrjá milljarða „Stóra-Hraun mun rísa“ Varaborgarfulltrúinn vill þriðja sæti Sundmenning Íslands á lista UNESCO Helmingur ríkisstofnana hafi stytt opnunartíma Sæðisgjafamálið: „Við fjölskyldan vöknuðum upp við vondan draum“ Gerðu engin mistök með nafngreiningu vændiskaupanda Gagnrýnir að auglýsingaskilti sé sett framar umferðaröryggi barna í forgangsröðinni „Þá sýndu stjórnvöld kjark“ Fjögur börn á Íslandi getin með sæði mannsins Útvarp Sólheimar er vinsæl útvarpsstöð Landsmenn sáttir: „Þetta eru bara glæpahundar“ Sjá meira
Fór að huga að morði eftir gerð YouTube myndbandsins Hugmynd Gunnars Rúnars Sigurþóssonar um að losna við Hannes Þór Helgason virðist hafa sprottið upp eftir að hann setti myndband á YouTube með ástarjátningu til hennar til unnustu Hannesar. Þetta kom fram í máli Tómasar Zoega geðlæknis sem gerði yfirmat á Gunnari Rúnari Sigurþórssyni ásamt Kristni Tómassyni geðlækni. 7. febrúar 2011 10:44
Deilt um sakhæfi Gunnars Rúnars Í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni er aðallega deilt um sakhæfi Gunnars, sagði Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari í málflutningi sínum fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Vitnaleiðslur báru þessa klárlega merki í dag, enda voru fjögur vitni og þar af þrír geðlæknar. Gunnar Rúnar hefur játað morðið á sig á fyrri stigum þess og vildi ekki bæta neitt við þann framburð í dag. 7. febrúar 2011 12:23
Aðkoman á morðstað föst í huga Hildar „Mér líður ógeðslega illa - persónan sem ég var er bara horfin," sagði Guðlaug Matthildur Rögnvaldsdóttir, unnusta Hannesar Þórs Helgasonar, við vitnaleiðslur í héraðsdómi í morgun. Guðlaug Matthildur, sem kölluð er Hildur, var niðurlút þegar hún gekk inn í dómssalinn. 7. febrúar 2011 11:21
Morðmálið lagt í dóm Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni lauk eftir klukkan eitt í dag og málið var þá lagt í dóm. Ákæruvaldið krefst ítrustu refsingar yfir Gunnari Rúnari sem er sextán ára fangelsi. Verjandi hans krefst hins vegar sýknu á grundvelli 15. greinar almennra hegningalaga, þ.e. á þeirri forsendu að hann hafi verið ófær um að stjórna gerðum sínum sökum geðveiki þegar morðið var framið. 7. febrúar 2011 14:33
Gunnar Rúnar svarar engu - víkur úr dómsal Gunnar Rúnar Sigurþórsson svarar engum spurningum við aðalmeðferð sem nú stendur yfir þar sem hann er ákærður fyrir að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana. Lögmaður Gunnars, Guðrún Sesselja Arnardóttir, tilkynnti við upphaf aðalmeðferðarinnar í morgun að hann myndi nýta sér rétt sinn til að svara engum spurningum heldur aðeins staðfesta lögregluskýrslur. Gunnar Rúnar óskaði eftir að víkja úr dómsal á meðan aðalmeðferðin stendur yfir, utan þess þegar hann staðfestir lögregluskýrslur, og var orðið við þeirri beiðni. Að þessu loknu var gert stutt hlé á þinghaldi en næst á dagskrá er skýrslutaka af geðlæknum. 7. febrúar 2011 09:46
Djúpstæð sektarkennd vegna morðsins Gunnar Rúnar Sigurþórsson þroskaðist eðlilega sem ungt barn en varð fyrir hörmulegu áfalli þegar faðir hans svipti sig lífi. Þetta sagði Helgi Garðar Garðarsson geðlæknir sem gerði geðrannsókn á Gunnari Rúnari eftir að hann var handtekinn vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni í ágúst. Helgi Garðar bar vitni í dómnum í morgun. Helgi Garðar telur Gunnar Rúnar vera ósakhæfan og vill að hann sæti öryggisgæslu. 7. febrúar 2011 10:06
Svæsið geðrof gerði Gunnar Rúnar ófæran um að stjórna gerðum sínum Svæsið geðrof varð til þess að Gunnar Rúnar Sigurþórsson varð ófær um að stjórna gerðum sínum, sagði Guðrún Sesselja Arnardóttir, verjandi Gunnars Rúnars, í málflutningi fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Máli sínu til stuðnings benti hún á vitnisburð þriggja geðlækna sem hafa borið vitni fyrir dómi. Hún fer frammá sýknu í málinu. 7. febrúar 2011 13:32
Erfiður morgunn fyrir fjölskyldu Hannesar „Það hefur verið erfitt fyrir þá sem sitja í dómsalnum að hlusta á óhugnanlegar lýsingarnar á morðinu. Ekki síst fyrir fjölskyldu, vini og aðstandendur Hannesar. Þetta hefur verið erfiður morgunn,“ sagði fréttamaðurinn Andri Ólafsson, í viðtali við Bylguna í hádeginu, þar sem hann lýsti andrúmsloftinu í réttarhöldunum yfir Gunnar Rúnari Sigurþórssyni. 7. febrúar 2011 12:16
Réttað yfir Gunnari Rúnari: Fullt út úr dyrum í héraðsdómi Aðalmeðferð fer nú fram í máli saksóknara gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni sem játað hefur að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana í Hafnarfirði í ágúst í fyrra. 7. febrúar 2011 09:18