Lífið

Sunna fær góða dóma í Austurríki

Djasspíanóleikarinn Sunna Gunnlaugsdóttir fær góða dóma í austur­ríska tímaritinu Concerto fyrir plötu sína The Dream, sem var nýlega tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna.

„Þótt Sunna Gunnlaugs sé ekki að finna upp hjólið á þessari plötu kemur hún á óvart með því að nostra við smáatriðin og píanóleikur hennar er þægilegur og fjölbreyttur," skrifaði gagnrýnandinn og gefur plötunni þrjár og hálfa stjörnu.

Kvartett Sunnu hyggur á tónleikaferð til Þýskalands og Austur­ríkis í lok september þar sem spiluð verða lög af nýju plötunni.

Í myndbandinu hér fyrir ofan sést Sunna taka titillag plötunnar, The Dream, á tónleikum í Washington D.C.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×