Bjarta gullið 15. júlí 2011 00:01 Um daginn var ég með dóttur minni í göngutúr í miðbænum þegar við gengum fram á fallegan drykkjarfont. Hann var í laginu eins og grjóthnullungur og efst úr honum gusaðist smáspræna sem fór niður í skál í bergið og lak þaðan niður með steininum og niður á stétt sem drakk vatnið í sig. Þar sem dóttir mín fékk sér sopa vakti hún óskipta athygli erlendra ferðalanga sem horfðu á barnið og vatnið og töluðu saman í lágum hljóðum og kinkuðu kolli. Um háttatíma þetta sama kvöld gekk fjölskyldan til sinna venjulegu kvöldverka: börnin fóru í buslubað, tennur voru burstaðar við sírennsli úr kalda krananum í fimm mínútur, allir fóru á klósettið og sturtaði hver niður á eftir sér, húsbóndinn fór í langa sturtu þegar börnin voru sofnuð og húsmóðirin í freyðibað þar á eftir til að slaka aðeins á. Síðan var hent í þriðju þvottavél dagsins, uppþvottavélin sett í gang og allir gengu til náða. Þegar ég var við nám í Englandi einhvern tíma laust fyrir aldamót var vatnið í krananum ódrekkandi og þurfti að kaupa allt drykkjarvatn í flösku. Til að fá heitt vatn varð að borga í smápeningasjálfsala. Bað var skipulagt langt fram í tímann eins og annar munaður. Kunningjar mínir í Belgíu borga um sjötíu þúsund krónur á mánuði fyrir að hafa heitt og kalt vatn rennandi á heimilinu, og kalda vatnið er varla nógu gott til að bursta tennurnar upp úr, hvað þá að drekka. Vatn er það dýrasta sem þau kaupa. Annars staðar í heiminum er ekki hægt að kaupa vatn, það er einfaldlega ekki til. Okkur finnst vatnið okkar sjálfsagt. Hreint, heitt eða kalt hitar það húsin okkar, fyllir sundlaugarnar, býr til ódýra rafmagnið okkar, nærir okkur, styrkir og bætir, hreinsar og kætir. Og eins og aðrir auðlindafurstar sullum við auðlegðinni okkar kæruleysislega út í loftið til að sýna hvað við eigum mikið. Þegar fólk kvartar yfir bágum lífskjörum hér á landi og hvað er hægt að kaupa ódýrt í matinn einhvers staðar annars staðar gleymist oft að reikna með þeim lífsgæðum að fara í sund og sturtu, vera hlýtt innanhúss, sturta niður úr klósettinu, bursta tennurnar og drekka úr krananum. Vatn er ekki eins og bensín eða veðursæld. Það er lífsnauðsyn og ekkert kemur í staðinn. Og allir sem geta drukkið hreint vatn að vild eru ríkir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Brynhildur Björnsdóttir Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnusta Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun