Vann eftirsótt verðlaun 3. september 2011 07:00 Brynjar Sigurðarson tók þátt í sýningu ungra hönnuða í Villa Noailles í Frakklandi og vann eftirsótt verðlaun.
Verkefni Brynjars var ljós og Húsgögn frá Vopnafirði.mynd/úr einkasafni Vöruhönnuðurinn Brynjar Sigurðarson vann eftirsótt hönnunarverðlaun í Frakklandi á dögunum. Brynjar fékk verðlaunin fyrir ljós og Húsgögn frá Vopnafirði, línu sem hann gerði fyrir lokaverkefni sitt í vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2009. Brynjar tók þátt í sýningu ungra hönnuða í Villa Noailles í franska strandbænum Hyères í suðurhluta Frakklands. „Villa Noailles er hálfgerð félagsmiðstöð þar sem haldin er hönnunarhátíðin Design Parade árlega. Partur af því er samkeppni ungra hönnuða," segir Brynjar við blaðamann um leið og hann stígur upp í rútu suður á bóginn. En honum var boðið að taka þátt í námskeiði á vegum skóframleiðandans Camper á Majorka. Var það hluti verðlauna sem hann hlaut á hönnunarsýningunni. Brynjar var valinn úr hópi fjölda ungra hönnuða í tíu manna úrtak sem tók þátt í sýningunni í Villa Noailles. „Ég kynnti verkin mín fyrir hálfgerðri dómnefnd og þeir völdu mig og annan strák sem sigurvegara þessarar keppni." En hver voru verðlaunin? „Ég fékk styrk upp á 5.000 evrur til að búa til hlut fyrir gallerí Kreo í París," upplýsir Brynjar en galleríið hefur alþjóðlegan einkarétt á sýningu nokkurra þekktra ljósa sem framleidd hafa verið í takmörkuðu upplagi. Brynjar telur upp fleiri verðlaun. „Síðan fæ ég rannsóknarstyrk til að vinna með glerfyrirtækinu Cirva í Marseille. Þangað fer ég á næsta ári og fæ að vinna með þeim og gera tilraunir með gler. Í lokin verður svo útbúið verk eftir mig," segir Brynjar sem einnig fékk rannsóknarstyrk hjá Sèvres, keramíkfyrirtæki í París. „Verðlaunin felast í því að ég fæ skemmtileg verkefni til að vinna með." Verðlaunaár Brynjars endar á því að hann fær að halda einkasýningu í Villa Noailles á Design Parade í júlí á næsta ári. Brynjari, sem stundar nú mastersnám í vöruhönnun í Sviss, hefur gengið vel í grein sinni undanfarið en í lok síðasta árs var hann valinn til að hanna forsíðu hönnunartímaritsins Wallpaper. Blaðamaður komst á snoðir um að vorverkefni Brynjars nú hafi verið valið eitt það besta í Evrópu úr hundruðum annarra af hinu þekkta hönnunar- og arkitektúrtímariti Blueprint. Brynjar er spurður um þetta: „Já er það? Það er gaman að því," segir hann glaðlega. „Ég vissi að það væri möguleiki." martaf@frettabladid.is
Lífið Tengdar fréttir Ein af stjörnum morgundagsins Brynjar Sigurðsson gerir janúarforsíðu Wallpaper. Hann stundar um þessar mundir nám í vöruhönnun við hinn virta svissneska skóla ECAL í Lausanne. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Brynjar þegar vakið mikla athygli. 3. janúar 2011 10:11 Mest lesið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Fleiri fréttir Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Staðráðnar í að koma sterkari til baka Minningar um mömmu það allra verðmætasta Sól sló í gegn á tískuviku í London Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Sjá meira
Ein af stjörnum morgundagsins Brynjar Sigurðsson gerir janúarforsíðu Wallpaper. Hann stundar um þessar mundir nám í vöruhönnun við hinn virta svissneska skóla ECAL í Lausanne. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Brynjar þegar vakið mikla athygli. 3. janúar 2011 10:11