Lífið samstarf

Prótein á að vera í for­gangi

Ölgerðin
„Við þurfum að hafa í huga að það er ekki nóg að fá prótein beint eftir æfingu. Það er einnig mikilvægt að fá nægilegt prótein yfir daginn og best er að dreifa neyslunni á máltíðir dagsins,“ segir Teitur Arason, íþróttafræðingur og einkaþjálfari hjá World Class. Þar kemur UPP, sem er nýr íslenskur próteindrykkur, sterkur inn en hann er blanda af mysupróteini og kollagenpeptíðum, samtals 20 grömm af próteini í hverri dós.
„Við þurfum að hafa í huga að það er ekki nóg að fá prótein beint eftir æfingu. Það er einnig mikilvægt að fá nægilegt prótein yfir daginn og best er að dreifa neyslunni á máltíðir dagsins,“ segir Teitur Arason, íþróttafræðingur og einkaþjálfari hjá World Class. Þar kemur UPP, sem er nýr íslenskur próteindrykkur, sterkur inn en hann er blanda af mysupróteini og kollagenpeptíðum, samtals 20 grömm af próteini í hverri dós. Þóra Ólafs.

„Þegar fólk heyrir orðið prótein hugsar það ósjálfrátt um fólk sem er að styrkja sig eða byggja upp vöðva, en hlutverk próteins er svo miklu, miklu meira en bara það,“ segir Teitur Arason, íþróttafræðingur og einkaþjálfari hjá World Class.

„Það er eitt af aðal næringarefnum líkamans og skiptir gríðarlega miklu máli fyrir okkur öll. Óháð því hvort við æfum oft í viku eða viljum einfaldlega hafa meiri orku yfir daginn er mikilvægt að hafa prótein í forgangi þegar við setjum saman máltíðir dagsins.

Líkaminn er stöðugt að gera við og viðhalda vefjum og þarf hráefni til þess. Prótein gefur okkur þessi hráefni í formi amínósýra.“

Einn þekktasti hágæða próteingjafinn er mysuprótein en það inniheldur allar níu lífsnauðsynlegu amínósýrurnar og er ríkt af greinóttum amínósýrum, svokölluðum BCAA. Þar á meðal er levsín (e. leucine), sem gegnir mikilvægu hlutverki við að örva nýmyndun vöðvapróteina.

Í nýja íslenska próteindrykknum UPP er blanda af mysupróteini og kollagenpeptíðum, samtals 20 grömm af próteini í hverri dós. Mysupróteinið er BLG, eða beta-laktóglóbúlín, eitt helsta prótein mysunnar. Um er að ræða mjög hreinan próteingjafa sem inniheldur allar níu lífsnauðsynlegu amínósýrurnar og er auk þess ríkur af levsíni. Kollagenpeptíð hafa aðra amínósýrusamsetningu og því sameinar UPP tvo ólíka próteingjafa.

Prótein skiptir máli allan daginn – ekki bara eftir æfingu

„Það er algengt að fólk hugsi mest um að innbyrða prótein beint eftir æfingu, sem er gott og gilt. Prótein er nauðsynlegt fyrir okkur og inniheldur þær amínósýrur sem líkaminn þarf til að byggja sig upp eftir erfiðar æfingar,“ segir Teitur. 

„Við þurfum að hafa í huga að það er ekki nóg að fá prótein beint eftir æfingu. Það er einnig mikilvægt að fá nægilegt prótein yfir daginn og best er að dreifa neyslunni á máltíðir dagsins. Það er gott að hugsa þetta þannig að æfingin sé álagið en endurheimtin uppbyggingin. Próteinið er síðan nauðsynlegur hluti af þeirri uppbyggingu.“

Þóra Ólafs.

Teitur segir að við tölum mjög oft um hvernig líkaminn lítur út, en það sem skipti miklu meira máli sé hvað hann getur gert. „Að geta farið út að hlaupa, leikið við börnin sín, farið í fjallgöngur eða önnur ævintýri, eða einfaldlega haldið styrk og sjálfstæði þegar við eldumst. Það er miklu mikilvægara. En það eru einnig fleiri kostir við próteininntöku. Meðal annars getur blóðsykurinn orðið stöðugri og þar með orka og líðan fólks.“

Einnig getur próteinið stuðlað að seddu. „Ef máltíð, sérstaklega fyrri part dags, inniheldur lítið prótein er líklegra að fólk finni fljótlega aftur fyrir hungri. Við erum kannski búin að ákveða hvað við ætlum að borða en svo þarf að sækja börnin í skólann, fara með þau á æfingar, vinnudagurinn lengist eða eitthvað óvænt kemur upp á. Á slíkum stundum er gott að hafa drykk eins og UPP við höndina. Auðvelt er að grípa hann með sér og þannig tryggja að maður fái nægilegt prótein yfir daginn.“

UPP inniheldur 20 grömm af próteini í einni dós og fæst með blóðappelsínu- og ananasbragði, og jarðarberja- og límónubragði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.