Lífið samstarf

Tryggðu þér nýtt raf­hjól fyrir 2027 á hag­stæðari kjörum

Örninn
Hjá Erninum hjólreiðaverslun er úrvalið fjölbreytt og nú geta viðskiptavinir einnig forpantað rafhjól úr 2027-línunni á sérstaklega hagstæðum kjörum. Jón Þór Skaftason er rekstrarstjóri hjá Erninum hjólreiðaverslun.
Hjá Erninum hjólreiðaverslun er úrvalið fjölbreytt og nú geta viðskiptavinir einnig forpantað rafhjól úr 2027-línunni á sérstaklega hagstæðum kjörum. Jón Þór Skaftason er rekstrarstjóri hjá Erninum hjólreiðaverslun.

Rafhjól njóta sífellt meiri vinsælda enda sameina þau hreyfingu, útiveru, sparnað og þægilegan ferðamáta. Hvort sem ætlunin er að hjóla í vinnuna, skjótast í búðina, fara í fjallaferðir eða skutla börnunum í leikskólann er hægt að finna rafhjól við hæfi. Hjá Erninum hjólreiðaverslun er úrvalið fjölbreytt og nú geta viðskiptavinir einnig forpantað rafhjól úr 2027-línunni á sérstaklega hagstæðum kjörum.

„Með forpöntun gefst fólki tækifæri til að tryggja sér nýtt rafhjól á betra verði. Við náum fram hagstæðari kjörum með því að panta hjólin fyrirfram frá framleiðendum og látum þann ávinning skila sér til viðskiptavina okkar,“ segir Jón Þór Skaftason, rekstrarstjóri hjá Erninum hjólreiðaverslun.

Rafhjól fyrir alla fjölskylduna

Hjá Erninum fást rafhjól frá þekktum framleiðendum á borð við TREK, Giant og STOER. Úrvalið spannar allt frá þægilegum götuhjólum og blendingum til daglegra nota til öflugra fjallahjóla og fjölskylduhjóla.

„Það er ótrúlega mikil fjölbreytni í rafhjólum í dag og þau henta mjög ólíkum þörfum. Við erum til dæmis sérstaklega spennt fyrir fjölskylduhjólunum, sem einnig eru kölluð nytjahjól. Þau hafa slegið í gegn víða í Evrópu og við finnum fyrir vaxandi áhuga á þeim hér heima,“ segir Jón Þór.

Á slíkum hjólum er hægt að skutla börnunum í leikskólann, fara í innkaupaferðir og sinna ýmsum daglegum erindum án þess að þurfa að ræsa bílinn. Jón Þór telur að þessi flokkur rafhjóla eigi eftir að vaxa verulega á næstu árum. „Það er líka áhugavert að nú er hægt að sækja um allt að 200 þúsund króna styrk hjá Orkusjóði vegna kaupa á þessari tegund hjóla.“

Ósveittur í vinnuna og meiri hreyfing á heimleiðinni

Einn helsti kostur rafhjóla er að hjólreiðamaðurinn getur sjálfur stjórnað því hversu mikla aðstoð hann fær frá mótornum. Það opnar ýmsa möguleika, ekki síst fyrir fólk sem vill nýta hjólið sem daglegan ferðamáta.

„Þú getur til dæmis hjólað í vinnuna með meiri aðstoð frá mótornum og mætt ferskur og ósveittur. Svo geturðu minnkað aðstoðina á heimleiðinni og tekið meira á því ef þú ert í stuði. Þetta er einn helsti kosturinn við rafhjól,“ segir Jón Þór.

Hann bendir á að rafhjól geri fólki jafnframt kleift að fara lengri vegalengdir og hjóla oftar en ella. „Þótt mótorinn hjálpi til ertu enn að hreyfa þig, njóta útiverunnar og fá ferskt loft. Fyrir marga getur rafhjólið alveg komið í stað bílsins stóran hluta ársins.“

Sjálfskipting og nagladekk fyrir veturinn

Tækninni fleygir stöðugt fram og ein af spennandi nýjungunum hjá Erninum í vetur eru rafhjól með sjálfskiptingu.

„Við erum nú í fyrsta sinn að bjóða rafhjól frá framleiðendum okkar með sjálfskiptingu. Þá þarf fólk ekki að hugsa um að skipta um gír heldur sér hjólið um það sjálft. Þetta eykur þægindin og getur líka dregið úr sliti á gírbúnaðinum,“ útskýrir Jón Þór.

Og þótt veturinn sé genginn í garð þarf ekki endilega að leggja hjólinu. „Það er hægt að setja nagladekk undir flest rafhjólin okkar. Þau veita betra grip í hálku og með réttum búnaði er vel hægt að hjóla áfram yfir vetrarmánuðina.“

Persónuleg ráðgjöf og öflugt verkstæði

Jón Þór segir mikilvægt að fólk velji rafhjól sem hentar þörfum þess. Hjá Erninum eru fjölmargar gerðir til sýnis og hægt er að prófa hjólin áður en ákvörðun er tekin.

„Við erum nýbyrjuð að bjóða upp á rafhjólaráðgjöf sem hægt er að bóka fyrirfram. Þar getur fólk sest niður með sérfræðingi og farið vel yfir möguleikana. Úrvalið er orðið svo mikið að það getur verið gott að fá aðstoð við valið.“

Þjónustunni lýkur heldur ekki þegar hjólið er komið í hendur kaupandans. Örninn hefur byggt upp öflugt hjólaverkstæði þar sem reynslumikið starfsfólk sinnir bæði almennu viðhaldi og sérhæfðum viðgerðum, meðal annars á mótorum rafhjóla.

„Við viljum að fólk fái góða þjónustu frá fyrsta degi og til lengri tíma. Það er alltaf velkomið að kíkja við, skoða úrvalið, prófa hjólin og spjalla við okkur. Við hjálpum fólki að finna rétta hjólið,“ segir Jón Þór Skaftason að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.