Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Brasserie Askur 29. október 2026 10:23 Jólahlaðborðin hjá Brasserie Aski hefjast 13. nóvember. Daginn eftir verður fyrsti jólabrönsinn borinn fram. Eins og fyrri ár verður áhersla lögð á klassískan íslenskan jólamat, rausnarlegar veitingar og notalegar samverustundir. Það er eitthvað sérstakt við að ganga inn á veitingastaðinn Brasserie Ask við Suðurlandsbraut. Þar mætast áratugalangar hefðir, heimilislegt andrúmsloft og matarilmur sem margir Íslendingar þekkja vel. Í ár fagnar þessi rótgróni veitingastaður 60 ára afmæli og fram undan er ein skemmtilegasta vertíð ársins.
Jólahlaðborðin hefjast 13. nóvember og daginn eftir verður fyrsti jólabrönsinn borinn fram. Að sögn Daníels Friðrikssonar, eiganda og framkvæmdastjóra Asks, verður áherslan sem fyrr á klassískan íslenskan jólamat, rausnarlegar veitingar og notalegar samverustundir. „Við viljum fyrst og fremst bjóða upp á góðan mat á sanngjörnu verði. Hér erum við ekkert að flækja hlutina með einhverju óþarfa fíneríi. Við leggjum áherslu á það sem við kunnum best, að bjóða góðan og vel matreiddan mat. Um leið viljum við að fólki líði vel hjá okkur,“ segir Daníel. Klassískt jólahlaðborð þar sem kjötið er í aðalhlutverki Jólahlaðborð Asks hefst föstudaginn 13. nóvember og verður á boðstólum frá fimmtudegi til sunnudags fram yfir jól. Þar verður boðið upp á fjölbreytt úrval hefðbundinna jólarétta, bæði kalda og heita, ásamt öllu því meðlæti sem tilheyrir íslenskri jólaveislu. „Við reynum að halda í hefðirnar og vera með klassískt íslenskt jólahlaðborð. Þar má meðal annars finna purusteikina okkar, grillað lambalæri og kalkún ásamt góðu meðlæti. Á kalda borðinu verður svo jólasíld, grafinn og reyktur lax, paté og ýmislegt fleira,“ segir Daníel. Hann segir kjötréttina jafnan njóta mestra vinsælda meðal gesta enda hafi kokkar staðarins mikla reynslu af matreiðslu þeirra. „Askur hefur alltaf verið þekktur fyrir úrvals kjöt. Sumir byrja á síldinni og kalda borðinu en aðrir fara nánast beint í kjötið. Við eldum svona mat allt árið um kring og kokkarnir okkar kunna vel til verka. Við erum til dæmis sérstaklega ánægðir með purusteikina okkar sem hefur lengi verið einn af vinsælustu réttum staðarins.“ Á hlaðborðinu verða einnig koníaksbætt villisveppasúpa, hangikjöt með uppstúf, sykurbrúnaðar kartöflur, heimagert rauðkál og fleiri kunnuglegir jólaréttir. Í eftirrétt verður meðal annars boðið upp á crème brûlée, súkkulaðimús, marengstertu Asks og ris à la mande. Jólahlaðborðið kostar 11.900 krónur á mann, sama verð og í fyrra. Jólahlaðborðið kostar 4.900 krónur fyrir börn á aldrinum sex til tólf ára en börn fimm ára og yngri borða frítt, eitt barn með hverjum fullgreiðandi fullorðnum. „Við viljum hafa þetta fjölskylduvænt. Það getur verið ansi kostnaðarsamt fyrir stórar barnafjölskyldur að fara saman á jólahlaðborð og þess vegna reynum við að hafa verðið sanngjarnt. Okkur finnst mikilvægt að fjölskyldur geti komið saman og notið góðs matar án þess að kostnaðurinn verði fráhrindandi,“ segir Daníel. Jólabrönsinn sameinar það besta úr báðum heimum Fyrir þá sem vilja njóta jólakræsinganna fyrr um daginn verður sérstakur jólabröns í boði á laugardögum og sunnudögum frá 14. nóvember. Þar mætast hefðbundinn helgarbröns og klassískt jólahlaðborð í einni veglegri veislu. Á borðinu verða meðal annars eggjahræra, beikon, smápylsur og amerískar pönnukökur ásamt jólasíld, gröfnum laxi, purusteik og gljáðum hamborgarhrygg. Að sjálfsögðu verður einnig boðið upp á fjölbreytt meðlæti og ljúffenga eftirrétti. „Jólabrönsinn er skemmtilegur kostur fyrir fjölskyldur, vinahópa og vinnufélaga sem vilja koma saman yfir góðum mat að degi til. Þar fær fólk bæði hefðbundna brönsrétti og jólamat, þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Daníel. Jólabrönsinn verður í boði frá klukkan 11.30 til 14 um helgar og kostar 7.900 krónur fyrir fullorðna og 3.500 krónur fyrir börn sex til tólf ára. Börn fimm ára og yngri borða frítt samkvæmt sömu skilmálum og á jólahlaðborðinu. Sextíu ára saga í veggjunum Askur var opnaður árið 1966 og hefur því verið hluti af íslenskri veitingasögu í sex áratugi. Á þeim tíma hafa ótal fjölskyldur, vinahópar og vinnufélagar átt þar góðar stundir. Á veggjum staðarins má meðal annars sjá myndir og úrklippur úr gömlum dagblöðum þar sem fjallað er um Ask og sögu hans. Það er því ekki laust við að gestum finnist þeir stíga örlítið aftur í tímann þegar þeir ganga inn á Ask. Innréttingarnar, hlýleg lýsingin og afslappað andrúmsloftið skapa notalega stemningu sem er orðin eitt helsta einkenni staðarins. Hér er enginn að flýta sér og margir gestir sitja lengi eftir matinn við spjall og notalegheit. „Það er einmitt eitt af því sem okkur finnst svo skemmtilegt við Ask. Fólk sest niður, nýtur matarins og gefur sér tíma til að spjalla. Hér er ekkert stress eða læti, bara notalegt umhverfi og góð þjónusta,“ segir Daníel. Hann segir marga fasta gesti hafa sótt staðinn í áratugi. Sumir hafi jafnvel komið þangað með foreldrum sínum sem börn en komi nú með eigin börn og barnabörn. „Við eigum stóran hóp tryggra gesta sem hefur komið hingað ár eftir ár. En það er líka mjög gaman að sjá ný andlit og fólk sem er að enduruppgötva Ask.“ Jólasnaps með íslensku greni Jólastemningin á Aski einskorðast þó ekki við matinn. Í fyrra útbjuggu Daníel og félagar í fyrsta sinn sinn eigin jólasnaps sem vakti mikla lukku meðal gesta. Hann verður því aftur á boðstólum í ár. „Við notum brennivín og látum íslenskt greni liggja í því í um þrjár vikur. Síðan bætum við kryddjurtum út í, meðal annars stjörnuanís, og látum það standa aðeins lengur. Útkoman er mjög skemmtilegur snaps með sérstökum grenikeim,“ segir Daníel. Stundum er gengið á milli borða með flöskuna og gestum boðið að smakka. „Þetta sló í gegn í fyrra og skapaði skemmtilega stemningu. Þess vegna ætlum við að gera meira af honum núna.“ Á Aski mætast áratugalangar hefðir, heimilislegt andrúmsloft og matarilmur sem margir Íslendingar þekkja vel. Á veggjum má sjá gamlar blaðaúrklippur með umfjöllun um veitingastaðinn. Skatan á sínum stað á Þorláksmessu Á Þorláksmessu tekur svo við önnur rótgróin hefð þegar skatan verður í aðalhlutverki. Askur hefur lengi boðið upp á skötu á þessum degi og segir Daníel áhugann vera mikinn. „Við verðum með skötu, plokkfisk, saltfisk og ýmislegt annað. Þetta verður fjölbreytt hlaðborð þar sem líka verður hægt að fá síld, lax og fleiri rétti. Við verðum að sjálfsögðu með hamsatólg fyrir þá sem vilja hana með skötunni.“ Hann segir tryggð gestanna við skötuveisluna einstaka. „Í fyrra voru um 50 til 60 manns sem bókuðu strax fyrir næstu Þorláksmessu þegar þeir voru á leiðinni út eftir matinn. Það segir auðvitað mikið um ánægju fólks.“ Skötuhlaðborðið kostar 7.900 krónur. Daníel hvetur jafnframt fólk til að bóka tímanlega á jólahlaðborðin, enda sé þegar farið að bóka töluvert. Á kvöldin verða tvær setur, sú fyrri frá klukkan 17 til 19 og sú seinni frá 20 til 22. „Með þessu getum við frískað upp á hlaðborðið á milli seta og tryggt að allir gestir fái sömu góðu upplifunina. Við viljum að það sé alltaf nóg af mat og að allt líti vel út.“ Í tilefni 60 ára afmælisins býður Askur upp á tilboð á hinu vinsæla hádegishlaðborði staðarins. Það kostar nú aðeins 2.990 krónur og mun tilboðið gilda út árið. Afmælistilboð út árið Í tilefni 60 ára afmælisins hefur Askur einnig verið með sérstakt tilboð á hinu vinsæla hádegishlaðborði staðarins. Það kostar nú aðeins 2.990 krónur og mun tilboðið gilda út árið. „Við vildum gera eitthvað skemmtilegt í tilefni afmælisins og um leið gefa fólki tækifæri til að kynnast staðnum eða enduruppgötva hann. Við höfum verið hér í 60 ár og ætlum okkur að halda áfram að bjóða góðan mat og taka vel á móti gestunum okkar.“ Jólahlaðborð og jólaveisluþjónusta fyrir hópa og fyrirtæki Fyrir utan jólahlaðborð og jólabröns býður Brasserie Askur einnig fyrirtækjum og hópum á höfuðborgarsvæðinu upp á jólaveisluþjónustu. „Þá komum við með matinn á vinnustaðinn, á heimilið eða í veislusalinn. Hægt er að velja um fjórar útgáfur: Hangikjötsveislu sem er klassísk og einföld jólaveisla fyrir minni hópa, jólapinnamat sem eru matarmiklir bitar fyrir jólaboð og starfsmannapartý, kalt jólahlaðborð og jólasteikarhlaðborð með kokki. Þannig að hvort sem um er að ræða starfsmannajól, jólaboð fyrirtækisins eða stærri hóp, þá sjáum við um jólamatinn og hjálpum ykkur að velja lausn sem hentar,“ segir Daníel Friðriksson að lokum.
Jólamatur Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Tónlist Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Bíó og sjónvarp Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Fleiri fréttir Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Sjá meira