Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Lyfja 7. október 2026 09:16 Tímastillti lyfjaskammtarinn frá Lyfju einfaldað lyfjatökuna enn frekar. F.v. eru Árni Freyr Helgason, lyfsali hjá Lyfju á Granda og Ólöf Helga Gunnarsdóttir, forstöðumaður Vörusviðs og greininga hjá Lyfju. Að muna eftir lyfjunum á réttum tíma getur verið einfalt þegar um er að ræða eina töflu á dag. Málið getur hins vegar flækst þegar lyfin verða fleiri, skammtarnir mismunandi og taka þarf lyf á nokkrum tímum dags. Þá getur lyfjaskömmtun komið að góðum notum og tímastilltur lyfjaskammtari einfaldað lyfjatökuna enn frekar. „
Lyfjaskömmtun er þjónustuleið þar sem lyfjum er raðað í sérstaka einnota poka og hver poki inniheldur einn lyfjaskammt. Pokarnir eru vel merktir með tímasetningu lyfjainntöku og þannig er betur hægt að tryggja að lyfjanotandinn taki lyfin sín í réttu magni á réttum tíma,“ segir Árni Freyr Helgason, lyfsali hjá Lyfju á Granda. Pokarnir mynda svokallaða lyfjarúllu og hægt er að fá rúllur með lyfjum fyrir 7, 14 eða 28 daga. Á hverjum poka koma meðal annars fram nafn og kennitala notandans, dagsetning og tími lyfjatöku og hvaða lyf eru í pokanum. Bakhliðin er gegnsæ þannig að notandinn sér innihaldið. Getur hentað mörgum Árni segir þjónustuna ekki síst henta fólki sem tekur mörg lyf eða þarf að taka þau á mismunandi tímum dags. „Lyfjaskömmtun hentar vel þeim sem eiga það til að gleyma að taka lyfin sín á réttum tíma, til dæmis eldri einstaklingum eða fólki sem glímir við langvinna sjúkdóma sem krefjast stöðugrar lyfjagjafar.“ Þeir sem eru í lyfjaskömmtun hjá Lyfju geta einnig leigt tímastilltan lyfjaskammtara til að hafa heima. Þar er markmiðið að gera lyfjatökuna enn einfaldari og draga úr því að notandinn þurfi sjálfur að halda utan um hvenær næsti skammtur á að vera tekinn. „Þegar búið er að setja lyfjarúlluna í tímastillta lyfjaskammtarann les hann upplýsingarnar á lyfjapokunum og afhendir hvern poka á réttum tíma. Ljós og hljóð á tækinu minna notandann á lyfjatökuna,“ segir Ólöf Helga Gunnarsdóttir, forstöðumaður Vörusviðs og greininga hjá Lyfju. Aðstandendur geta fengið tilkynningu Skammtarinn er ekki eingöngu hugsaður sem áminning fyrir notandann sjálfan. Ef notandinn sækir ekki lyfjapokann geta allt að þrír skráðir aðstandendur fengið sjálfvirka tilkynningu í símann. Það getur veitt fjölskyldu og öðrum aðstandendum aukna hugarró, sérstaklega þegar um er að ræða fólk sem býr eitt og þarf að taka lyf reglulega. „Með því að afhenda einn skammt í einu á réttum tíma dregur tækið úr líkum á að lyf gleymist, séu tekin á röngum tíma eða jafnvel að þau séu öll tekin á sama tíma, sem við höfum því miður heyrt sögur af,“ segir Ólöf. Hún telur að tæknin geti jafnframt hjálpað fólki að halda sjálfstæði sínu lengur. „Við teljum að lyfjaskammtarinn geti skipt sköpum fyrir marga lyfjanotendur og aðstandendur þeirra. Með öruggari og einfaldari lyfjatöku getur hann stutt við sjálfstæði og hjálpað fólki að búa lengur á eigin heimili, á sama tíma og hann veitir aðstandendum hugarró.“ Auðvelt að bregðast við breytingum Lyfjameðferð er ekki alltaf óbreytt og því vaknar eðlilega sú spurning hvað gerist ef læknir breytir skammti eða bætir nýju lyfi við eftir að lyfjarúllan hefur verið útbúin. „Það er einfalt að bregðast við breytingum á lyfjameðferð. Lyfjafræðingar Lyfju uppfæra skömmtunina samkvæmt nýrri lyfjaávísun og breytingarnar taka gildi með næstu lyfjarúllu. Lyfjaskammtarinn þekkir síðan nýju rúlluna sjálfkrafa og heldur áfram að afhenda rétt lyf á réttum tíma,“ segir Ólöf. Ef breytingin þarf að taka gildi strax er einnig hægt að útbúa svokallaða viðbótarskömmtun, litla aukarúllu sem inniheldur breytinguna og er notuð þar til fyrri rúlla klárast. Í lyfjaskömmtun er bæði hægt að setja töflur og hylki og að sögn Árna er einnig hægt að óska eftir að flestar gerðir vítamína og bætiefna fari í rúlluna. Önnur lyfjaform, svo sem freyðitöflur, innöndunarlyf og dropar, henta ekki í lyfjaskömmtun. Einfalt að taka fyrsta skrefið Fyrir þann sem hugsar að lyfjaskömmtun og lyfjaskammtari gætu hentað honum sjálfum eða aðstandanda er tiltölulega einfalt að kanna málið. „Hægt er að skrá sig á vef Lyfju og óska eftir persónulegri ráðgjöf frá lyfjafræðingi. Við höfum síðan samband innan tveggja daga og leiðum viðskiptavininn í gegnum næstu skref,“ segir Árni. „Einnig er hægt að ræða við sinn lækni um rafræna skömmtunarlyfjaávísun og koma við í næsta apóteki Lyfju þar sem við aðstoðum við að koma þjónustunni af stað.“ Notandinn getur valið hvort lyfjarúllan sé sótt í apótek eða send heim. Lyfjaskammtarinn sjálfur er leigður gegn mánaðargjaldi og almenn tækniþjónusta og áskrift fylgir leigunni. Markmiðið er í grunninn einfalt: að auðvelda fólki að taka rétt lyf, í réttu magni og á réttum tíma, og ekki síst að gera lyfjatökuna að aðeins minna áhyggjuefni í daglegu lífi.
Heilsa Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Sjá meira