Íslenski boltinn

Ólafur Jóhannesson: Þetta er mjög vitlaus umræða

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafur Jóhannesson hefur verið með landsliðið frá 2007 og stjórnar því í 35. sinn í kvöld.
Ólafur Jóhannesson hefur verið með landsliðið frá 2007 og stjórnar því í 35. sinn í kvöld. Mynd/Anton
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari Íslands, verður í sviðsljósinu í kvöld þegar íslenska liðið mætir Ungverjum í vináttulandsleik í Búdapest.

Hans Steinar Bjarnason, íþróttafréttamaður á Stöð 2, spurði Ólaf í kvöldfréttunum í gær út í umræðuna sem er í gangi um það hver taki við landsliðinu af honum.

„Mér finnst þessi umræða mjög vitlaus," sagði Ólafur og hann vildi ekki gefa upp hvort hann sækist eftir því að vera áfram með liðið.

„Ég hef svarað því áður að ég kem til með að klára þann samning sem ég er með við sambandið og svo verður það mál skoðað í framhaldinu," sagði Ólafur sem stjórnar íslenska landsliðinu í 35. sinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×