Gosið og kvótinn Bergsteinn Sigurðsson skrifar 1. september 2011 06:00 Vestmannaeyjar eru rótgróinn útgerðarbær sem á allt sitt undir auðlindum hafsins. Því er rétt að leggja við eyrun þegar forsvarsmenn bæjarfélagsins tjá sig um hvernig nýtingu þeirra auðlinda skuli háttað. Í fyrradag lagði bæjarráð Vestmannaeyja fram umsögn um frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á fiskveiðistjórnunarlögum. Þar kemur fram að verði frumvarpið samþykkt muni það ríða útgerðarfyrirtækjum í bænum á slig og valda svo mikilli fólksfækkun að ekki „verður séð að aðrir viðburðir í sögu byggðar í Vestmannaeyjum muni hafa áður haft viðlík áhrif á samfélag Eyjamanna nema ef til vill eldgosið 1973 og Tyrkjaránið 1627". Freistandi er að afskrifa svona upphrópanir sem skrum og áróður. Sýnum kjörnum fulltrúum Vestmannaeyinga hins vegar þá kurteisi að taka þá alvarlega og gefa fullyrðingum þeirra gaum. Erfitt er að leggjast í raunhæfan samanburð á Tyrkjaráninu 1627 og hugsanlegum breytingum á kvótakerfinu með tilliti til íbúaþróunar. Látum það því liggja milli hluta. Vestmannaeyjagosið 1973 er nærtækara dæmi. Lítum betur á það. Árið 1972 voru Vestmannaeyingar 5.179 talsins. Eftir gos 1973 fækkaði þeim snarlega. Lægstur varð íbúafjöldinn 4.369 manns árið 1974 og hafði þar með fækkað um 810 frá því fyrir gos. Ekki lítil blóðtaka það. Vestmannaeyingar réttu hins vegar furðu fljótt úr kútnum; frá 1975 fjölgaði þeim jafnt og stöðugt allt til ársins 1991. Þá var fjöldi íbúa orðinn 4.923, aðeins 256 sálum færri en árið fyrir gos. Það er allgóður árangur. Árið 1991 varð hins vegar viðsnúningur á þessari þróun. Næstu sautján ár í röð fór Eyjamönnum fækkandi og voru árið 2008 ekki nema 4.055; 856 færri en þeir voru 1991. Hér höfum við tvö tímabil, álíka löng. Það fyrra, sem við getum kallað eftirgosárin, byrjar á snarpri fólksfækkun í kjölfar náttúruhamfara en fljótlega fer íbúum aftur fjölgandi þar til þeir hafa næstum náð fyrri fjölda. Seinna tímabilið, frá 1991 til 2008, einkennist hins vegar af stöðugri fólksfækkun í sautján ár í röð. Hvernig sem á það er litið er samanburðurinn seinna tímabilinu í óhag. Ekki aðeins fækkaði Eyjamönnum meira á þessu tímabili en í kjölfar gossins, bæði í rauntölum og hlutfallslega, heldur var þróunin neikvæð allan tímann. Það var ekki fyrr en eftir bankahrunið sem Eyjamönnum tók að fjölga á nýjan leik og eru nú í kringum 4.200 – rúmlega 700 færri en þeir voru 1991 og rúmlega 160 færri en árið eftir gos. Hvað gerðist árið 1991 sem olli því að Vestmannaeyingum hætti að fjölga og við tók langt tímabil fólksfækkunar? Svarið við því er sjálfsagt ekki einhlítt. Frjálst framsal aflaheimilda, sem var heimilað þetta ár, hefur varla haft mikil áhrif því hlutdeild Vestmanneyja í þorskkvóta á landsvísu hefur verið nokkurn veginn sú sama allt tímabilið. Hins vegar minnkaði sjálft aflamarkið smám saman. Í Vestmannaeyjum voru veidd um fjórtán þúsund tonn af þorski 1991 en aðeins um tíu þúsund tonn 2010. Með því fækkaði störfum. Það kallar fram sterk hughrif að setja fram varnaðarorð með tilvísun í náttúruhamfarir. Til þess var leikurinn eflaust gerður hjá bæjarráði Vestmannaeyja. Sannleikurinn er aftur á móti sá að þróun byggðar í Vestmannaeyjum var verri eftir 1991 en árin eftir gos. Sú blóðtaka varð þrátt fyrir það fyrirkomulag í fiskveiðistjórnun sem bæjarráðið í Vestmannaeyjum segir að ekki megi hrófla við án þess að allt fari til fjandans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bergsteinn Sigurðsson Mest lesið Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Reykjavík er frjáls Björg Magnúsdóttir Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason Skoðun Er það hræðsla að segja nei? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun