Viðskipti erlent

Kallaður á fund evruleiðtoga

Öll spjót standa nú á Georg Papandreú, forsætisráðherra Grikklands, vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu.Nordicphotos/AFP
Öll spjót standa nú á Georg Papandreú, forsætisráðherra Grikklands, vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu.Nordicphotos/AFP
Leiðtogar evruríkjanna kölluðu í gær á sinn fund í Cannes í Frakklandi Georg Papandreú, forsætisráðherra Grikklands, til að rekja úr honum garnirnar varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem hann hefur boðað. Leiðtogafundur G20-ríkjanna, tuttugu helstu efnahagsvelda heims, hefst í Cannes í dag.

Talið hefur verið að atkvæðagreiðslan muni snúast um björgunarpakka Evrópusambandsins, en breska dagblaðið Financial Times fullyrti í gær að þjóðaratkvæðagreiðslan muni snúast um hvort Grikkland eigi að vera áfram meðal evruríkjanna.

Gríska ríkisstjórnin ákvað í fyrrinótt, eftir sjö klukkustunda langan og erfiðan fund, að standa við bakið á forsætisráðherranum, sem hafði boðað til þjóðaratkvæðagreiðslunnar án þess að bera það undir stjórnina.

Þjóðþing Grikklands greiðir á morgun atkvæði um traust til ríkisstjórnarinnar, og ræðst þá hvort stjórnarmeirihlutinn standi eða falli.

- gb, bj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×