Tveir skartgripaþjófar dæmdir 14. desember 2011 03:30 Akureyri Mennirnir brutust inn í þrjú hús á Akureyri og létu greipar sópa.
Tveir ungir menn, 18 og 24 ára, hafa verið dæmdir í þriggja og sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfelld þjófnaðarbrot. Þeir stálu meðal annars miklu magni af skartgripum, sem sumir voru gamlir, og fjölmörgum fleiri dýrum munum. Mennirnir brutust inn í þrjú íbúðarhús á Akureyri þar sem þeir létu greipar sópa. Auk skartgripanna sem þeir stálu á öllum stöðunum höfðu þeir á brott með sér dýran sjónvarpsskjá, tölvur, myndavél, upptökuvél, 150 minjagripaskeiðar og tugi þúsunda í peningum í íslenskri og erlendri mynt. Einnig kipptu þeir með sér tveimur tegundum af blóðþrýstingslyfjum og einu spjaldi af róandi lyfi sem einnig dregur úr ofnæmisviðbrögðum Mennirnir voru gripnir á víðavangi eftir vettvangsrannsókn lögreglu á þriðja innbrotinu. Nokkuð af þýfinu fannst við leit á þeim og við yfirheyrslur játuðu þeir brot sín. Við húsleit lögreglu á heimili þeirra fannst enn meira þýfi og einnig átta kannabisplöntur, sem þeir voru einnig dæmdir fyrir. Báðir eiga mennirnir sakaferil að baki, mismunandi alvarlegan þó.- jss
Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sjá meira