Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Smári Jökull Jónsson skrifar 31. október 2026 16:39 Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari. Vísir/Anton Brink Ríkissáttasemjari hefur lagt fram tillögu í virðismatsdeilu kennara og sveitarfélaga. Hafa aðilarnir tíma til miðnættis til að taka afstöðu til tillögunnar en þá rennur út frestur til að virkja forsenduákvæði í kjarasamningi.
Þetta sagði Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við fréttastofu nú á fimmta tímanum. Ástráður boðaði deiluaðila til fundar skömmu fyrir hádegi í dag en honum lauk um klukkan 16. Sagði hann að hafi verið boðaður til að ræða þá stöðu sem komin væri upp um óeiningu í virðismatsvinnu. Á fundinum lagði Ástráður fram tillögu um skilmála fyrir framhaldinu og hafa aðilarnir fengið tillöguna í hendur. Hafa þeir nú frest til miðnættis til að taka afstöðu til hennar en þá rennur út frestur til að virkja forsenduákvæði í kjarasamningi KÍ og SÍS. Fari svo að það verði virkjað gætu samningar kennara orðið lausið þann 1. mars næstkomandi. Deilan snýst um vinnuramma vegna virðismats sem unnið hefur verið að síðustu mánuði. Samkvæmt heimildum fréttastofu lögðu stjórnvöld fram tillögu sem er utan þess ramma sem kjarasamningur kveður á um en í samningi var heimild til að fresta mati á vinnunni um allt að sex mánuði. Magnús Þór Jónsson sagði í viðtali við Vísi í vikunni að kennarar væru ekki tilbúnir að samþykkja lengingu samkomulagsins en í viðtali við Daða Már Kristófersson fjármálaráðherra í gær kom fram að hann teldi ekki að verið væri að víkja frá gildandi samkomulagi.
Kjaramál Vinnumarkaður Grunnskólar Stéttarfélög Leikskólar Framhaldsskólar Tengdar fréttir Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Fjármálaráðherra telur ekki að tillaga stjórnvalda til kennara þýði að vikið sé frá gildandi kjarasamningi. Samningar kennara eru í uppnámi vegna túlkunar á ákvæði um gerð virðismats en náist ekki samkomulag gætu samningar kennara losnað í mars. 30. október 2026 12:10 Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Formaður Kennarasambands Íslands segir óvænt útspil stjórnvalda á þriðjudag hafa sett kjarasamninga kennara í uppnám. Lagt hafi verið til að hvika frá því markmiði sem lengi hafi verið stefnt að nokkrum dögum áður en frestur til að virkja forsenduákvæði í gildandi samningi rynni út. Ef samningsaðilar nái ekki aftur saman fyrir lok laugardags muni kennarar neyðast til að virkja umrætt ákvæði. 29. október 2026 21:59 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira
Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Fjármálaráðherra telur ekki að tillaga stjórnvalda til kennara þýði að vikið sé frá gildandi kjarasamningi. Samningar kennara eru í uppnámi vegna túlkunar á ákvæði um gerð virðismats en náist ekki samkomulag gætu samningar kennara losnað í mars. 30. október 2026 12:10
Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Formaður Kennarasambands Íslands segir óvænt útspil stjórnvalda á þriðjudag hafa sett kjarasamninga kennara í uppnám. Lagt hafi verið til að hvika frá því markmiði sem lengi hafi verið stefnt að nokkrum dögum áður en frestur til að virkja forsenduákvæði í gildandi samningi rynni út. Ef samningsaðilar nái ekki aftur saman fyrir lok laugardags muni kennarar neyðast til að virkja umrætt ákvæði. 29. október 2026 21:59