Framtakssjóður Íslands (FSÍ), sem er í eigu Landsbankans, flestra lífeyrissjóða landsins og Vátryggingafélags Íslands, hefur verið stórtækasti fjárfestir landsins eftir bankahrun. Dómnefnd Markaðarins taldi kaup hans á eignarhaldsfélaginu Vestia af Landsbankanum, og viðskipti hans með bréf í Icelandair, vera næstbestu viðskipti ársins.
FSÍ keypti Vestia reyndar í ágúst 2010 en sjóðurinn og Samkeppniseftirlitið náðu ekki samkomulagi um skilyrði fyrir kaupunum fyrr en um miðjan janúar 2011. Sjóðurinn greiddi 15,5 milljarða króna fyrir, auk þess sem Landsbankinn keypti 27,5% hlut í FSÍ við sama tækifæri. Bankinn tryggði sér þar með hluta í framtíðararðsemi fyrirtækjanna sem áður tilheyrðu Vestia.
Með kaupunum á Vestia eignaðist FSÍ 81% hlut í sjávarútvegsfyrirtækinu Icelandic Group, 79% hlut í Vodafone, 79% hlut í upplýsingatæknirisanum Skýrr og allt hlutafé í Húsasmiðjunni og Plastprenti. Flestar eignirnar höfðu farið í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu og voru vel rekstrarhæf. FSÍ seldi síðan starfsemi Icelandic Group í Bandaríkjunum og Asíu til kanadíska sjávarútvegsfyrirtækisins High Liner Foods á 26,9 milljarða króna í nóvember. Sjóður hefur auk þess selt Húsasmiðjuna til danska fyrirtækisins Bygma og stefnir að því að skrá Skýrr og Icelandic Group á markað á næstu árum.
FSÍ eignaðist 30% hlut í Icelandair í tveimur útboðum á árinu 2010. Sjóðurinn greiddi 2,5 krónur á hlut í þeim útboðum og því fjárfesti hann samtals fyrir um 3,6 milljarða króna í Icelandair á þeim tíma. Í byrjun nóvember tilkynnti sjóðurinn að hann hefði selt 10% af eignarhlut sínum á 2,7 milljarða króna, á genginu 5,42.
Bréfin höfðu þá ávaxtast um 120% frá því að þau voru keypt í júní og desember 2010. Kaupendurnir voru reyndar að mestu þeir sömu og eiga FSÍ en andvirði sölunnar rann beint til eigenda FSÍ í samræmi við skilmála sjóðsins, sem gera ráð fyrir því að allir eigendurnir fái strax greitt við sölu í samræmi við eignarhlut sinn.
Það þýddi að Landsbankinn, stærsti eigandi FSÍ, sem keypti ekki hlut, fékk um 745 milljónir króna greiddar vegna sölunnar.
Viðskipti FSÍ með Vestia og Icelandair

Mest lesið

Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye
Viðskipti innlent

Arctic Adventures kaupir Happy Campers
Viðskipti innlent

Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið
Viðskipti innlent

Trump-tollar tóku gildi í nótt
Viðskipti erlent

Ísland brotlegt í pitsaostamálinu
Viðskipti innlent

Enn ein eldrauð opnun
Viðskipti innlent

ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins
Viðskipti innlent


Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike
Viðskipti innlent

Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist
Viðskipti innlent