Fótbolti

Dortmund með þrettán stiga forystu

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Kevin Grosskreutz í leiknum í gær.
Kevin Grosskreutz í leiknum í gær. AFP
Borussia Dortmund er komið með þrettán stiga forystu í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það vann góðan 1-3 sigur á Bayer Leverkusen í gærkvöldi.

Kevin Grosskreutz skoraði tvö mörk fyrir Dortmund og Mario Götze eitt. Mörkin skoraði Dortmund á sex mínútna kafla í upphafi síðari hálfleiks.

Stefan Kiessling minnkaði muninn á 80. mínútu fyrir Leverkusen sem er í þriðja sæti deildarinnar á markatölu. Mainz er í öðru sætinu.

Hannover er svo í fjórða sætinu og Bayern Munchen í því fimmta. Hoffenheim, lið Gylfa Sigurðssonar, er í áttunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×