Viðskipti erlent

Borgin Detroit á leiðinni í gjaldþrot

Góðar líkur eru á að borgin Detroit í Bandaríkjunum lýsi sig gjaldþrota. Ef svo fer verður þetta stærsta borgin í sögu Bandaríkjanna sem fer þá leið.

Þetta virðist skjóta skökku við því bandarískir bílaframleiðendur áttu gott ár í fyrra og methagnaður varð af starfsemi þeirra eftir sjö mögur ár. Málið er að þótt General Motors séu enn með aðalskrifstofu sína í miðborg Detroit nær félagið ekki inn á topp tíu listann yfir þá atvinnurekendur í borginni sem eru með flesta starfsmenn í vinnu.

Nær allar bílaverksmiðjurnar eru fluttar út fyrir borgarmörkin. Aðeins Chrysler rekur enn eina færibandaverksmiðju í borginni. Michigan ríkið sem Detroit tilheyrir hefur hinsvegar hagnast um einar 850 milljónir dollara á velgengi bílaframleiðendanna.

Detroit þarf að borga 45 milljónir dollara í apríl næstkomandi en borgarsjóður er tómur. Borgarbúum hefur fækkað svo mikið undanfarin ár að skattstofnar borgarinnar hafa hrunið. Og þótt borginni takist að borga þessar milljónir í apríl er annar gjalddagi í júní og svo fleiri fram að áramótum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×