Viðskipti erlent

Eignir Carlos Slim á við sex árlegar landsframleiðslur Íslands

Carlos Slim er langsamlega ríkasti maður heims, samkvæmt uppfærðum lista Forbes tímaritsins.
Carlos Slim er langsamlega ríkasti maður heims, samkvæmt uppfærðum lista Forbes tímaritsins.
Ríkasti maður veraldar, samkvæmt uppfærðum lista Forbes, er Mexíkóinn Carlos Slim. Eignir hans eru metnar á 74 milljarðar dollara, eða sem nemur ríflega níu þúsund milljörðum króna. Það jafnast á við sex árlegar landsframleiðslur Íslands.

Slim er í dag langsamlega ríkasti maður heims en næsti maður á eftir honum, Bill Gates stjórnarformaður Microsoft, er talinn eiga eignir upp á 56 milljarða dollara.

Slim stækkaði eignasafn sitt um 20,5 milljarða dollara í fyrra sem kom mörgum á óvart. Þar vega þungt fasteignaverkefni hans í Mexíkó og námuiðnaður víða í Suður-Ameríku. En eignasafn hans í skráðum félögum í Mexíkó ávaxtaðist um 19 prósent í fyrra. Kjarnastarfsemi hans byggir á fjarskiptafyrirtækjum í Suður-Ameríku, en Slim og fjölskylda hans á 62 prósent hlut í America Movil, sem er stærsta fjarskiptafyrirtækið í Mexíkó.

Slim er meðal stærstu eiganda bandaríska stórblaðsins The New York Times auk þess að vera stærsti einstaki hluthafi Saks smásölukeðjunnar. Að öðru leyti hefur hann ekki mikið fjárfest í bandarísku efnahagslífi.

Slim opnaði nýlega stærsta listaverkasafn Mexíkó, Soumaya safnið. Á því er finna marga verðmæta dýrgripi en Slim ákvað að hafa frítt inn allt árið um kring fyrir almenning í Mexíkó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×