Viðskipti erlent

"Apple á meira en nóg af peningum"

mynd/AP
Tim Cook, forstjóri Apple, sagði í gær að stjórn fyrirtækisins íhugi nú að greiða hluthöfum arð. Hann sagði að Apple hafi meira en nóg af peningum til ráðstöfunar. Talið er að Apple eigi um 98 milljarða dollara.

„Stjórnin íhugar nú málið," sagði Cook. „Þetta er þó ekki eitt af þeim tilfellum þar sem allir eru sammála."

Apple hætti að greiða hluthöfum sínum arð árið 1995. Miklir erfiðleikar einkenndu rekstur fyrirtækisins á þeim tíma og þótti nauðsynlegt að halda í allan þann pening sem kom inn í fyrirtækið.

Svo bagalegt var ástand Apple að árið 1997 þurfti fyrirtækið að leita til síns helsta keppinautar eftir aðstoð. Microsoft lánaði Apple 150 milljón dollara. Það var á þessum tíma sem Steve Jobs var á ný ráðinn til starfa hjá Apple.

Steve Jobs, stofnandi og fyrrverandi forstjóri Apple, var ávallt mótfallinn ársfjórðungslegum greiðslum til hluthafa. Undir stjórn Jobs tókst Apple því að safna gríðarlegu ráðstöfunarfé.

Ummæli Tim Cooks í gær gefa því til kynna að breyttir tímar séu hjá Apple. „Í sannleika sagt höfum við meira en nóg af peningum til að reka fyrirtækið næstu árin," sagði Cook.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×