Íslenski boltinn

17 ára strákarnir lögðu 19 ára strákana

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Íslenska liðið sem varð Norðurlandameistari síðasta sumar.
Íslenska liðið sem varð Norðurlandameistari síðasta sumar. Mynd / Páll Jóhannesson
U17 ára landsliðið í knattspyrnu karla lagði kollega sína í U19 ára landsliðinu 3-1 í æfingaleik í Egilshöll í dag. Sindri Björnsson, leikmaður Leiknis í Breiðholti, skoraði tvö marka 17 ára liðsins.

Úrslitin eru athyglisverð en komu Kristni R. Jónssyni, þjálfara 19 ára landsliðsins, ekki á óvart en undirritaður heyrði í honum hljóðið í dag.

„Við vorum að prufa ýmislegt í leiknum sem við höfum ekki gert áður en það gekk ekki neitt. Þeir eru að undirbúa sig undir mót og eru komnir langt á veg sem er flott," sagði Kristinn sem sagði úrslitin gefa ágæta mynd af leiknum.

Kristinn benti einnig á að 19 ára liðið væri skipað leikmönnum fæddum árið 1994. Því muni aðeins ári en ekki tveimur á leikmönnum liðanna en strákarnir í 17 ára liðinu eru flestir fæddir 1995.

U17 ára landsliðið heldur eftir viku til Skotlands þar sem liðið leikur í milliriðli Evrópumótsins 2012. Íslenska liðið vann sinn riðil í undankeppninni sem fram fór í Ísrael í október og virðist í góðu standi fyrir milliriðilinn.

Andstæðingar liðsins í Skotlandi verða Danir og Litháar auk heimamanna. Efsta sæti riðilsins gefur þátttökurétt í úrslitakeppni EM sem fram fer í maí. Íslenska liðið mætti því danska í úrslitum Norðurlandamótsins norðan heiða síðasta sumar og hafði sigur 1-0.

Að sögn Gunnars, þjálfara liðsins, er baráttan um sæti í hópnum afar hörð. Til merkis um það bendir hann á að b-lið Íslands hafnaði í 4. sæti á Norðurlandamótinu síðastliðið sumar. Samkeppnin er ekki síst þegar kemur að stöðu markvarðar þar sem hann telur Íslendinga standa vel að vígi en fjórir flottir markverðir bítast um stöðurnar að sögn Gunnars.

Líklegt verður að telja að Orri Sigurður Ómarsson og Óliver Sigurjónsson, leikmenn AGF í Árósum, komi inn í hópinn en þeir voru ekki með í leiknum í dag. Þá er ljóst að Hafnfirðingurinn Þórður Jón Jóhannesson verður ekki með sökum meiðsla.

17 ára hópurinn verður tilkynntur á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×