Formúla 1

Villeneuve ók Ferrari-bíl föður síns

Birgir Þór Harðarson skrifar
Kanadamaðurinn Jacques Villeneuve ók Ferrari-bíl föður síns frá 1979 á tilraunabraut Ferrari á Ítalíu í gær. Þrjátíu ár eru liðin síðan Gilles Villeneuve fórst í tímatökum fyrir belgíska kappaksturinn í Zolder.

Jacques ók í Formúlu 1 frá 1996 til 2006 og varð heimsmeistari fyrir Williams árið 1997. Hann er einn þriggja ökuþóra sem hafa bæði orðið heimsmeistarar í Formúlu 1, meistarar í CART og sigrað Indy 500 kappaksturinn í Bandaríkjunum.

Gilles tókst aldrei að vinna meistaratitilinn en var hátt skrifaður ökuþór hjá Ferrari. Hann fórst í óhappi fyrir erfiðan hlekk í Zolder-brautinni. Eftir samstuð á 225 kílómetra hraða við Jochen Mass á March-bíl flaug Ferrari-bíllinn upp í loft og endastakst svo inn á brautina aftur í henglum.

Gilles Villeneuve var aðeins 32 ára gamall þegar hann fórst en hefur orðið að tákngervingur þessa mótunarskeiðs Formúlu 1.

Fylgjast má með samantekt Murray Walker um Gilles í myndbandinu hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×