Íslenski boltinn

Fær Willum Þór fyrstu stigin sín í kvöld?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Willum Þór Þórsson.
Willum Þór Þórsson. Mynd/Vilhelm
Þriðja umferð 1. deildar karla í fótbolta hefst í kvöld með þremur leikjum og þar á meðal er botnslagur Þróttar og Leiknis á Valbjarnarvellinum en bæði lið eru án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Willum Þór Þórsson tók við liði Leiknis fyrir tímabilið og er þekktur fyrir að byrja vel með sín lið. Leiknisliðið tapaði hinsvegar fyrir norðanliðunum Þór (2-0) og KA (1-3) í fyrstu tveimur umferðunum og þarf því nauðsynlega á stigum á halda í leik kvöldsins.

Páll Einarsson er á sínu þriðja tímabili með Þróttara en liðið hefur tapað báðum leikjum sínum 1-3, fyrir Hetti og Þór.

Aðrir leikir kvöldsins eru á milli KA og Víkings á Akureyrarvelli og á milli ÍR og Fjölnis á Hertz-vellinum í Mjódd. Leikurinn á Akureyri hefst klukkan 18.30 en hinir tveir byrja klukkan 20.00.

Ólafur Þórðarson tók við liði Víkinga fyrir tímabilið og liðið hefur ekki fengið á sig mark í fyrstu tveimur leikjum sínum. Það hafa aftur á móti níu mörk litið dagsins ljós í tveimur fyrstu leikjum KA-manna í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×