Íslenski boltinn

Rúrik: Við þurfum bara að fara ná úrslitum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Svíar skora hér annað markið sitt í kvöld.
Svíar skora hér annað markið sitt í kvöld. Mynd/AFP
Rúrik Gíslason og félagar í íslenska landsliðinu þurftu að sætta sig við annað 2-3 tapið í röð á móti Svíþjóð í Gautaborg í kvöld en íslensku strákarnir geta hinsvegar verið sáttir með spilamennskuna á móti Frökkum og Svíum, tveimur sterkum þjóðum sem eru í lokaundirbúningi sínum fyrri úrslitakeppni EM.

„Við verðum að koma aðeins grimmari til leiks því við vorum alltof passívir í byrjun og fáum mark á okkur eftir rúma eina mínútu. Það gerði þetta rosalega erfitt en við sínum fína takta og náum að skora tvö mörk í báðum leikjunum á móti góðum liðum á útivelli. Við þurfum bara að einbeita okkur að því að fá færri mörk á okkur," sagði Rúrik en Svíar komust í 2-0 eftir aðeins 14 mínútur.

„Það er bullandi sjálfstraust í liðinu þrátt fyrir að úrslitin hafi ekki verið okkur í hag undanfarið. Við hefðum vissulega getað brotnað niður eftir að lenda 2-0 undir en við erum sterkari andlega en það að brotna undan smá pressu. Við þurftum bara að gefa aðeins meira í þetta," sagði Rúrik.

Mynd/Nordic Photos/Getty
„Við vorum inn í leiknum og vorum búnir að halda boltanum vel í stöðunni 1-2 fyrir þá. Það var svolítið svekkjandi að fá á okkur þriðja markið sem drap okkur svolítið. Við þurfum bara að vera klókari, fækka mistökum og vera þéttari varnarlega sem lið. Mér finnst samt að varnarmennirnir hafi staðið sig mjög vel í þessum tveimur leikjum," sagði Rúrik.

„Það eru aðeins öðruvísi áherslur hjá Lars en við erum allir staðráðnir í því að fara með Ísland á rétta braut og sýna hvað í okkur býr. Ísland á fullt af hæfileikaríkum fótboltamönnum og við þurfum bara að fara ná úrslitum. Ég hef enga trú á öðru en að það komi," sagði Rúrik.

„Við erum búnir að spila mjög vel á löngum köflum í þessum tveimur leikjum og þá sérstaklega í fyrri hálfleiknum á móti Frökkum. Þá vorum við þéttir fyrir og beittum góðum skyndisóknum. Við þurfum að trúa því að við getum haldið boltanum. Við erum ekki lengur Ísland sem spilar löngum boltum. Í dag erum við kannski jafngóðir í því að halda bolta og við erum lélegir í því að negla boltanum fram völlinn," sagði Rúrik að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×