Íslenski boltinn

Sandra inn fyrir Guðbjörgu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sandra Sigurðardóttir.
Sandra Sigurðardóttir. Mynd/Daníel
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, kvennalandsliðsþjálfari, hefur þurft að gera breytingu á hópnum sínum fyrir leikina gegn Ungverjalandi og Búlgaríu í undankeppni EM.

Guðbjörg Gunnarsdóttir er meidd og hefur Sigurður Ragnar kallað á Söndru Sigurðardóttur úr Stjörnunni inn í íslenska hópinn í stað Guðbjargar.

Sandra á að baki sex A-landsleiki en hún lék sinn síðasta landsleik á móti Eistlandi 25. ágúst 2010.

Sandra hefur aðeins fengið á sig 2 mörk í síðustu 4 leikjum Stjörnunnar en Stjörnukonur hafa unnið þá alla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×