Formúla 1

Harður árekstur í sólarhringsakstrinum í Le Mans

Birgir Þór Harðarson skrifar
Anthony Davidson var í þriðja sæti þegar hann reyndi að hringa hægari bíl í sólarhringskappakstrinum í Le Mans sem stendur nú yfir. Áreksturinn var gríðarlega harður en ökuþórarnir virðast ómeiddir en Davidson verður sendur á sjúkrahús til frekari skoðunnar.

Piergiuseppe Perazzini ók hægfara Ferrari-bílnum inn í hliðina á Toyota-bíl Davidson. Toyota-bíllinn var í þriðja sæti og systurbíll hans í öðru sæti á eftir Audi R18 bíl. Við áreksturinn tókst Toyotan á loft og endaði á veggnum án þess að Davidson gæti nokkuð gert.

Áreksturinn var í Muslanne beygjunni frægu en hún er gríðarlega flólkin fyrir ökumenn. Perazzini sagði við Eurosport að hann hefði vitað af Davidson við hliðina á sér. "Það er bara ómögulegt að átta sig á fjarlægðunum á svona miklum hraða," sagði hann.

Nú vinna brautarstarfsmenn við að endurbyggja vegriðið og mun það taka um 30 mínútur. Á meðan er gulum flöggum veifað um alla brautina og öryggisbílarnir þrír leiða hópinn.

Myndband af árekstrinum má finna hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×