Formúla 1

Sebastian Vettel á ráspól í Valencia

Birgir Þór Harðarson skrifar
Vettel mun ræsa fremstur í kappakstrinum á morgun.
Vettel mun ræsa fremstur í kappakstrinum á morgun. nordicphotos/afp
Sebastian Vettel ók hraðasta allra um brautina í Valencia á Spáni í tímatökunum fyrir kappaksturinn sem fram fer á morgun.

Lewis Hamilton á McLaren og Pastor Maldonado á Williams urðu þar á eftir. Hringtími Vettel var heilum þremur tíundu úr sekúntu hraðari en Hamiltons. Það verður að teljast nokkuð mikið í ljósi þess hve jöfn öll liðin hafa verið fram að þessu.

Romain Grosjean og Kimi Raikkönen á Lotus munu ræsa í fjórða og fimmta sæti á undan Nico Rosberg á Mercedes. Rosberg var gríðarlega svekktur með að ná ekki að setja hraðari tíma. Hann kennir Lewis Hamilton um en sá þvældist fyrir Rosberg í síðasta tímatökuhringnum.

Jenson Button náði ekki þeim árangri sem við var búist og ræsir aðeins níundi á ráslínunni. Á undan honum urðu Kamui Kobayashi á Sauber og Nico Hulkenberg á Force India. Annar Force India maður ræsir fyrir aftan Button, Paul di Resta.

Ferrari-bílarnir komust ekki upp úr annari lotu tímatökunnar. Alonso segir þó að liðið hafi ekki átt í neinum sérstökum vandræðum í tímatökunni. Hann ræsir ellefti og Felipe Massa þrettándi, rétt á eftir Michael Schumacher.

Alonso kennir lélegri stöðu um hversu jöfn keppnin er í ár. "Hvað frammistöðu varðar þá var þetta ein besta tímataka ársins hjá okkur. Hvað stöðuna varðar þá er þetta einhver sú versta."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×