Körfubolti

James á sama aldursári og Jordan þegar hann vann fyrsta titilinn 1991

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Jordan með bikarinn í júní 1991.
Michael Jordan með bikarinn í júní 1991. Mynd/Nordic Photos/Getty
LeBron James er í fyrsta sinn á ferlinum aðeins einum sigri frá NBA-meistaratitlinum sem hann hefur dreymt um í níu tímabil. Miami Heat tekur á móti Oklahoma City Thunder í fimmta leik úrslitaeinvígsins. Miami er búið að vinna þrjá síðustu leiki og vantar því bara einn sigur í síðustu þremur leikjunum. Fimmti leikurinn fer fram í kvöld og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst klukkan eitt eftir miðnætti.

Það er athyglisvert að bera LeBron James saman við Michael Jordan sem líkt og James var fyrir löngu búinn að afreka allt á sínum ferli áður en hann náði loksins að vinna titilinn. Svo skemmtilega vill til að James er nú á 28. aldursári alveg eins og Jordan þegar His Airness vann fyrsta titilinn af sex með Chicago Bulls liðinu árið 1991.

James er reyndar nokkuð yngri. Jordan vann titilinn þegar hann var 28 ára, 3 mánaða og 26 daga gamall en James er 27 ára, 5 mánaða og 22 daga gamall í dag.

Þegar Jordan varð fyrst meistari, þá hafði hann tvisvar verið kosinn besti leikmaður tímabilsins, fimm sinnum verið stigahæstur, komist fimm sinnum í úrvalslið tímabilsins og fjórum sinnum í varnarlið ársins.

James hefur þrisvar sinnum verið kosinn besti leikmaður NBA-deildarinnar og einu sinni verið stigahæsti leikmaður deildarinnar. Hann var í vor valinn í sjötta sinn í lið ársins og komst jafnframt í fjórða sinn í varnarlið ársins.

Michael Jordan varð reyndar meistari á sínu sjöunda tímabili (James er á sínu níunda) og fagnaði titlinum í sínum 579. leik í NBA-deildinni (70. í úrslitakeppni). James er aftur á móti að spila sinn 804. NBA-leik í kvöld þar af þann 115. í úrslitakeppni.

Jordan var búinn að vinna þrjá meistaratitla þegar hann spilaði sinn 804. leik vorið 1995 en hann var þá nýkominn aftur í NBA-deildina eftir hafnarboltaævintýrið sitt. Jordan varð meistari þrjú ári í röð frá 1991 til 1993 og svo aftur þrjú ár í röð frá 1996 til 1998.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×