Formúla 1

Úrhelli setur strik í reikninginn á fyrstu æfingum

Áhorfendur sem ekki sátu í yfirbyggðri stúku rifu upp regnhlíf í bresku fánalitunum.
Áhorfendur sem ekki sátu í yfirbyggðri stúku rifu upp regnhlíf í bresku fánalitunum. nordicphotos/afp
Roman Grosjean var fljótastur á rennandi blautri Silverstone-brautinni á æfingum fyrir breska kappaksturinn á sunnudaginn. Keppnisliðin óku öll örfáa hringi vegna aðstæðna. Kobayashi ók þó nítján stykki.

Fernando Alonso, sem leiðir heimsmeistarabaráttuna, setti ekki tíma á þessum fyrstu æfingum þrátt fyrir að hafa ekið fjóra hringi. Paul di Resta ók ekki heldur tímatökuhring vegna þess að hann átti í vandræðum með stýristöngina í Force India-bílnum.

Aðstæðurnar voru ömurlegar fyrir Formúlu 1-bíla. Pollar og úrhelli gerðu ökumönnum erfitt um vik og bílarnir flutu upp.

Það er ómögulegt að segja eitthvað til um möguleika hvers og eins eftir tímum þeirra á æfingunum. Aðstæður voru þannig að keppnisliðin hafa nýtt tímann til að sækja upplýsingar um virkni bílsins um brautina frekar en að aka hraðan hring.

Veðurspár gera ráð fyrir rigningu alla helgina svo það má vel gera ráð fyrir óvæntum úrslitum í breska kappakstrinum. Ekki það að Formúla 1 þurfi sérstakar aðstæður til þess í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×