Formúla 1

McLaren-menn efstir eftir fyrstu æfingar

Birgir Þór Harðarson skrifar
Jenson Button ók hraðast um Hockenheim-brautina í Þýskalandi.
Jenson Button ók hraðast um Hockenheim-brautina í Þýskalandi. nordicphotos/afp
Jenson Button á McLaren var fljótastur um Hockenheim-brautina í Þýskalandi í dag þegar fyrstu æfingar fyrir þýska kappaksturinn fóru fram þar í morgun. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton, var annar nánast hálfri sekúndu á eftir.

Varasamt getur reynst að ráða of mikið í tímana því rigningar trufluðu æfingarnar. Tímarnir segja því ekki mikið um keppnisform liðanna að svo stöddu.

Fernando Alonso á Ferrari var þriðji fljótastur og heimamaðurinn Michael Schumacher á Mercedes fjórði. Red Bull-mennirnir Sebastian Vettel og Mark Webber óku marga hringi en settu aðeins tólfta og tuttugasta besta tíma æfinganna.

Kimi Raikkönen á Lotus var heldur ekkert sérstaklega fljótur og átti fimmtánda besta tíma. Það er þó samspil rigningar og mismunandi keppnisáætlana sem ráða mestu um röðun ökumanna í dag.

Niðurstöðurnar eru engu að síður jákvæðar fyrir McLaren sem hafa átt erfitt uppdráttar í undanförnum mótum eftir frábæra byrjun tímabilsins. Niðurstaðan er sérlega ánægjuleg fyrir Button sem hefur ekki náð að aðlaga ökustíl sinn að nýjum kröfum Pirelli-dekkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×