Formúla 1

Raikkönen gæti farið aftur til Ferrari

Birgir Þór Harðarson skrifar
Kimi er ekki viss hvar hann verður á næsta ári.
Kimi er ekki viss hvar hann verður á næsta ári. nordicphotos/afp
Kimi Raikkönen tekur ekki fyrir að snúa aftur til Ferrari á næsta ári. Hann ók fyrir ítalska liðið í þrjú ár, 2007-2009, og varð heimsmeistari í rauðum fák árið 2007. Raikkönen ekur nú fyrir Lotus.

Árangur Kimi í Lotus-bílnum í ár hefur vakið áhuga Ferrari-liðsins á honum á ný en hann þótti mjög vinsæll þar áður en ákvað að gefa Formúlu 1 upp á bátinn í lok árs 2009 og huga að heimsmeistarakeppninni í rallý.

Ferrari-liðið er nú að skima eftir nýjum ökumanni til að fylla sæti Felipe Massa á næsta ári. Massa hefur ekki náð markmiðum sínum og liðsins í mótum ársins og því er talið víst að hann fái samning sinn ekki endurnýjaðan.

Lotus-liðið á hinn bóginn gerir ráð fyrir því að Raikkönen aki fyrir liðið á næsta ári. Kimi hefur verið í samningsviðræðum við lið sitt í einhvern tíma því samningur hans við liðið rennur út í lok þessa árs.

Formúla 1 er nú í sumarfríi allan ágústmánuð og keppir næst á belgísku brautinni í Spa-Francorshamps. Það verður því kannski lítið um að vera á ökumannamarkaðinum á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×