Viðskipti erlent

Velgengni Amazon nær nýjum hæðum

Þriðja kynslóð Kindle lesbrettisins. Fjórða kynslóðin er væntanleg seinna á þessu ári.
Þriðja kynslóð Kindle lesbrettisins. Fjórða kynslóðin er væntanleg seinna á þessu ári. mynd/AFP
Vefverslunarrisinn Amazon tilkynnti fyrr í vikunni að rafbækur sem einskorðaðar eru við Kindle-lesbrettið hafa verið keyptar, halað niður og lánað rúmlega hundrað milljón sinnum. Rétt rúmlega 180 þúsund rafbækur eru á bókaskrá Amazon.

Fyrsta Kindle-lesbrettið fór á markað í nóvember árið 2007. Notendur virðast hafa tekið tækninni með opnum örmum og hafa vinsældir litlu tölvunnar aukist jafnt og þétt síðustu misseri.

En þessi gríðarlega aukning sem orðið hefur á niðurhali á rafbókum Amazon má rekja til Prime viðskiptaþjónustunnar sem fyrirtækið kynnti fyrir nokkrum árum. Með þjónustunni geta viðskiptavinir Amazon fengið bækur að láni, gjaldlaus og án skiladags.

Jeff Bezos, forstjóri Amazon.mynd/AFP
Vinsælustu Kindle rafbækurnar eru A Modern Witch eftir Debora Geary, Fifty Shades of Grey eftir E. L. James og bókaröðin vinsæla um Harry Potter. Hungurleikarnir eftir Sauzanne Collins er síðan vinsælasta bókaröð í sögu vefverslunarinnar.

Á síðustu árum hefur Amazon gengið í gegnum endurskipulagningu á nær öllum starfsháttum sínum. Innleiðing Kindle lesbrettisins og Kindle Fire spjaldtölvunnar hefur kallað aukna fjárfestingar, til dæmis í gagnaverum sem fyrirtækið rekur nú víða um heim.

Apple er helsti samkeppnisaðili Amazon. Miðað við uppgjör Apple fyrir síðasta ársfjórðung hefur fyrirtækið nú um 70 prósent markaðshlutdeild á spjaldtölvumarkaðinum. Hlutdeild nýliðans, Amazon, stendur í 4.2 prósentum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×