Körfubolti

Jabbar fær styttu af sér fyrir utan Staples Center

Jabbar ásamt Isiah Thomas.
Jabbar ásamt Isiah Thomas.
Lakers-goðsögnin, Kareem Abdul-Jabbar, fær gamlan draum uppfylltan í vetur þegar það verður reist stytta af honum fyrir utan heimavöll Lakers, Staples Center.

Jabbar er stigahæsti leikmaður í sögu NBA-deildarinnar með 38.387 stig. Hann var einnig valinn verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar, vann sex titla og þar af fimm með Lakers. Einn kom með Milwaukee Bucks.

Jabbar fór í svakalega fýlu þegar Lakers reisti styttu af Magic Johnson fyrir utan Staples Center. Þá sagðist hann vera sármóðgaður og hélt því fram að Lakers væri alveg sama um sig.

Hann getur þerrað tárin núna þar sem styttan er á leiðinni upp.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×