Viðskipti erlent

Forsvarsmenn Samsung ætla að grípa til varna

Magnús Halldórsson skrifar
Forsvarsmenn tæknirisans Samsung ætla að grípa til varna og gera „allt sem hægt er til þess að verja fyrirtækið", að því er segir í minnisblaði sem stjórn Samsung sendi starfsmönnum fyrirtækisins fyrr í dag.

Eins og greint hefur verið frá var Samsung dæmt af bandarískum dómstóli til þess að greiða einn milljarð dala í sekt, jafnvirði um 120 milljarða króna, fyrir að hafa nýtt sér höfundarréttarvarinn hugbúnað í Galaxy síma, sem Apple nýtir í iphone síma sína.

Niðurstöðunni verður áfrýjað, og segjast forsvarsmenn Samsung fullvissir um að markaðurinn og viðskiptavinir muni standa með fyrirtækinu „líkt og hingað til".

Samkeppnin á snjallsímamarkaði í heiminum er gríðarlega hörð, þá helst á milli Apple og Samsung. Vöxturinn í sölu hefur verið ævintýri líkastur, en sem dæmi um hvernig salan á símtækjum fyrirtækjanna hefur verið, má nefna að Samsung seldi meira en 40 milljónir Galaxy síma á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012, sem þýðir um 480 þúsund síma á hverjum degi.

Sjá má umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC hér, um minnisblað stjórnar Samsung, hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×