Íslenski boltinn

Norðmenn búnir að færa Íslandsleikinn yfir á Ulleval

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fanndís Friðriksdóttir.
Fanndís Friðriksdóttir. Mynd/Daníel
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mun berjast við Belgíu og Noreg um sæti í úrslitakeppni EM í Svíþjóð í haust og einn af mikilvægustu leikjunum er lokaleikur Noregs og Íslands 19. september næstkomandi. Norðmenn eru nú búnir að færa Íslandsleikinn yfir á Ulleval en það kemur fram í frétt inn á heimasíðu Knattspyrnusambandsins.

Íslenska liðið er eins og er í efsta sæti riðilsins, einu stigi á undan Noregi, þegar tveir leikir eru eftir hjá liðunum í riðlinum. Belgar eru svo skammt undan í þriðja sæti, tveimur stigum á eftir Íslendingum.

Noregur tekur á móti Íslandi í lokaleiknum í riðlinum og hefur norska knattspyrnusambandið nú ákveðið, meðal annars vegna mikilvægi leiksins, að leika hann í Osló, nánar tiltekið á Ulleval vellinum. Upphaflega átti leikurinn að fara fram í Sarpsborg en því hefur nú verið breytt.

Næsta verkefni stelpnanna okkar verður hinsvegar laugardaginn 15. september en þá verður tekið á móti Norður Írum á Laugardalsvelli. Leikurinn hefst kl. 16.15 og með sigri þá hefur íslenska liðið tryggt sér a.m.k. sæti í umspili fyrir úrslitakeppnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×